Bæjarstjórn

10. nóvember 2021 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1879

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
  • Kristinn Andersen forseti
  • Jón Ingi Hákonarson 1. varaforseti
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.

Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.

Í upphafi bar forseti upp tillögu um að mál nr. 1806149, Ráð og nefndir 2018-2022 yrði sett á dagskrá fundarins og er það samþykkt samhljóða.

Ritari

  • Ívar Bragason Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.

Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.

Í upphafi bar forseti upp tillögu um að mál nr. 1806149, Ráð og nefndir 2018-2022 yrði sett á dagskrá fundarins og er það samþykkt samhljóða.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Lögð fram tillaga á breytingu á fulltrúa í Svæðisskipulagsnefnd Höfuðborgarsvæðisins. Daði Lárusson fer út og en í hans stað kemur Jón Ingi Hákonarson.

      Samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1805076 – Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur

      1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
      Umhverfis- og framkvæmdaráð, á fundi sínum þann 20. október 2021, óskar eftir við skipulags- og byggingarráð að farið verði í skipulagsbreytingu vegna færslu Hamraneslínu við Ásland 4.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagsbreyting vegna færslu Hamraneslínu við Hamranes og Ásland 4 verði vísað til vinnu við aðalskipulagsbreytingu Áslands 4 og 5. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Til máls tekur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Sigurður Þ. Ragnarsson og Ingi Tómasson svarar andsvari.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

    • 2104436 – Smyrlahraun 41a, aðalskipulagsbreyting

      2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
      Lögð fram tillaga vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin snýr að landnotkun. Umsagnir vegna lýsingar lagðar fram.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu með vísan til skipulagslaga og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Ingi Tómasson.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

    • 2109653 – Miðbær, aðalskipulagsbreyting

      3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
      Lögð fram tillaga að breyttri greinargerð miðbæjarsvæðis M1 aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025. Umsögn Skipulagsstofnunar vegna lýsingar lögð fram.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttri greinargerð aðalskipulags Hafnarfjarðar er varðar miðbæjarsvæði M1 með vísan til skipulagslaga og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Ingi Tómasson tekur til máls.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.

    • 1510061 – Ásvellir, uppbygging

      11.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
      Lögð fram matsáætlun framkvæmda skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

      Lagt fram til kynningar og vísað til kynningar í bæjarstjórn.

      Ingi Tómasson tekur til máls. Einnig tekur Friðþjófur Helgi Karlsson til máls.

    • 2103100 – Gullhella 2, Tinhella 2, 4 og 6, fyrirspurn

      1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4.nóvember sl.
      Tekin fyrir umsókn Klettaskjóls ehf um lóðirnar Gullhellu 2, Tinhellu 2, 4, 6, 10 og 12. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs mætir til fundarins.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðunum Gullhellu 2, Tinhellu 2, 4, 6, 10 og 12 verði úthlutað til Klettaskjóls ehf.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur bæjarráðs um úthlutun lóðanna.

    • 2110371 – Breiðhella 3,umsókn um lóð

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn Iðn-ak ehf, um atvinnuhúsalóðina nr. 3 við Breiðhellu.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni nr. 3 við Breiðhellu verði úthlutað til Iðn-ak ehf.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur bæjarráðs um úthlutun lóðarinnar.

    • 2111079 – Straumhella 6, umsókn um lóð

      7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn Byggingafélags Hafnarfjarðar ehf um lóðina Straumhellu 6.

      Tvær umsóknir bárust um lóðina og dró fulltrúi sýslumanns úr umsóknum. Dregin var umsókn Byggingafélags Hafnarfjarðar ehf. Bæjarráð leggur því til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur bæjarráðs um úthlutun lóðarinnar.

    • 2110322 – Straumhella 4,umsókn um lóð

      9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn Björns Arnars Magnússonar um atvinnuhúsalóðina nr. 4 við Straumhellu.

      Tvær umsóknir bárust um lóðina og dró fulltrúi sýslumanns úr umsóknum. Dregin var út umsókn Björns Arnars Magnússonar. Leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til Björns Arnars.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur bæjarráðs um úthlutun lóðarinnar.

    • 2108594 – Dofrahella 1, umsókn um lóð

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4.nóvember sl.
      Lögð fram umsókn Almannakórs ehf. um atvinnuhúsalóðina nr. 1 við Dofrahellu.

      Fimm umsóknir bárust um lóðina og dró fulltrúi sýslumanns úr umsóknum. Dregin var út umsókn Almannakórs ehf. en til vara var dregin út umsókn Tæki.is. Bæjarráð leggur því til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til Almannakórs ehf.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögur bæjarráðs um úthlutun lóðanna.

    Fundargerðir

    • 2101038 – Fundargerðir 2021, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 22.október og 3.nóvember sl.
      a. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 8. og 13. október sl.
      b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 8.október sl.
      Fundargerðir fræðsluráðs frá 26. október og 3.nóvember sl.
      Fundargerðir fjölskylduráðs frá 1. og 5.nóvember sl.
      Fundargerðir bæjarráðs frá 29.október og 4.nóvember sl.
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 27.október sl.
      b. Fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25.október sl.
      c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25.október sl.
      d. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24.september og 29.október sl.
      e. Fundargerð 35.eigendafundar Sorpu bs. frá 22.október sl.
      f. Fundargerð 34.eigendafundar Strætó bs. frá 15.október sl.
      g. Fundargerð stjórnar Strætó bs frá 8.október sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.nóvember sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 8.nóvember sl.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls undir máli nr. 6 í fundi fræðsluráðs frá 3. nóvember sl. Þá tekur Kristín Thoroddsen til máls undir sama máli og Guðlaug kemur til andsvars og Kristín svarar andsvari. Þá tekur Jón Ingi Hákonarson tilmáls undir sama máli.

    Áætlanir og ársreikningar

    • 2105289 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2022 og 2023-2025, fyrri umræða.

      1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 29. október sl.
      Lögð fram fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans fyrir 2022 og langtímaáætlun fyrir 2023-2025.

      Lagðar fram gjaldskrár Hafnarfjarðarkaupstaðar 2022.

      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2022 og 2023-2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

      Einnig tekur Adda María Jóhannsdóttir til máls og leggur fram svohljóðandi tillögur við fjárhagsáætlun:

      Tillögur við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2022

      Tillögur Samfylkingar og Bæjarlista:

      Tillaga 1 – Tekjustofnar sveitarfélaga ? útsvarsprósenta
      Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista leggja til að útsvarsprósenta við álagningu 2022 verði 14,52%

      Greinargerð:
      Vinna við gerð fjárhagsáætlunar sýnir að grunnrekstur sveitarfélagsins á árinu 2022 verður þungur. Lögbundin verkefni sveitarfélaga eru fjölmörg og sífellt bætist við þau verkefni sem þeim ber að sinna. Útsvarið er veigamesti tekjustofn sveitarfélaga og mikilvægt að það sé nýtt til að styrkja stöðu bæjarsjóðs. Hámarksnýting hefur ekki mikil áhrif á hvern bæjarbúa á mánaðargrundvelli (um 200-400 kr. á meðallaun) en bæjarsjóð munar sannarlega um þá fjármuni sem um ræðir (áætlað um 55-60 m.kr.).

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni er vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

      Tillögur Samfylkingarinnar:

      Tillaga 3 – Úttekt á á fólksfækkun í Hafnarfirði

      Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að úttekt verði gerð á þeirri fólksfækkun sem hefur átt sér stað í Hafnarfirði síðustu misseri. Í því felst að kortleggja hvaða hópar eru einkum að flytja úr bænum, hvers konar húsnæði vantar og hvar eru tækifæri til uppbyggingar í landi Hafnarfjarðar. Með hliðsjón að úttektinni verði farið í átak að efla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði.

      Greinargerð
      Í tölum Þjóðskrár kemur fram að íbúum hefur fækkað frá árinu 1. des. 2019 til 1. september 2021 um 312. Þetta er í fyrsta skiptið í 80 ár sem íbúum Hafnarfjarðar fækkar, en á sama tíma fjölgaði íbúum í nágrannasveitarfélögunum um 1.1-3.4%. Samkvæmt áætlunum aðalskipulags er gert ráð fyrir að íbúum fjölgi að lágmarki um 1.2% (335-445 íbúa) á ári fram til ársins 2040. Ljóst er að það þarf að lyfta grettistaki til að snúa þessari þróun við og vinna til baka umrædda fækkun.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni er vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

      Tillaga 4 – Samgöngusamningar

      Fulltrúar Samfylkingarinnar endurflytja tillögu um að Hafnarfjarðarbær bjóði starfsfólki sínu upp á samgöngusamninga.

      Greinargerð:
      Í kjölfar tillögu frá fulltrúum Samfylkingarinnar um samgöngustyrki sem lögð var fram í bæjarstjórn sumarið 2018 var sett af stað tilraunaverkefni hjá Hafnarfjarðarbæ sem ekki hefur verið fylgt frekar eftir. Samgöngusamningar hafa hins vegar verið teknir upp í fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum, ásamt m.a. Reykjavíkurborg, með góðum árangri. Áhersla á lýðheilsu á að vera forgangsmál og mikilvægt að heilsubærinn Hafnarfjörður sýni gott fordæmi með því að bjóða starfsfólki sínu samgöngusamninga og hvetja þannig til umhverfisvænni ferðamáta.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni er vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

      Tillaga 5 – Leikskóli í skólahverfi Öldutúnsskóla

      Fulltrúar Samfylkingarinnar endurflytja tillögu um uppbyggingu leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla.

      Greinargerð:
      Frá því að annar tveggja leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla var lagður niður hafa fulltrúar Samfylkingarinnar lagt til að hafist verði handa við uppbyggingu nýs leikskóla í hverfinu. Síðustu ár hefur mest skort á leikskólapláss í þessu skólahverfi og foreldrar þurft að keyra börn sín í önnur skólahverfi til að sækja leikskóla. Það er fyrirséð að með breytingum á aldurssamsetningu vegna endurnýjunar í hverfinu og aukinni íbúðauppbyggingu muni þörfin á leikskólaplássum síst fara minnkandi. Það er því mikilvægt að horfa til framtíðar.

      Því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar aftur fram tillögu um að hafist verði handa við uppbyggingu á leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla hið fyrsta. Leikskólar eiga að að vera hluti af nærþjónustu og börnum að standa til boða leikskólapláss í sínu hverfi. Sem fjölskylduvænt samfélag ætti Hafnarfjörður að sjá hag í því að vinna að þessu markmiði og styðja þannig um leið við hugmyndir um þéttingu byggðar og umhverfissjónarmið.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni verði vísað til umfjöllunar í fræðsluráði og umhverfis- og framkvæmdaráði.

      Tillaga 6 – Ráðning forvarnarfulltrúa

      Fulltrúar Samfylkingarinnar endurflytja tillögu um að ráðinn verði forvarnarfulltrúi í fullt starf.

      Greinargerð:
      Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021 lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að ráðinn yrði forvarnarfulltrúi. Það hefur ekki verið gert en verkefnum forvarnarfulltrúa bætt á störf fagstjóra frístundar. Þann 16. júní sl. var einnig ákveðið að stofna faghóp sem myndi fylgjast með forvarnarmálum tengdum börnum og unglingum í Hafnarfirði, safna upplýsingum, veita stuðning og samræma aðgerðir. Þetta eru vissulega skref í rétta átt en engu að síður er mikilvægt er að styðja við þessar aðgerðir með ráðningu forvarnarfulltrúa og tryggja þannig forræði á málaflokknum og samfellu í öllu forvarnarstarfi.
      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni verði vísað til umfjöllunar í fræðsluráði.

      Þá tekur Sigurður Þ. Ragnarsson til máls og leggur fram svohljóðandi tillögur við fjárhagsáætlun:

      Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi tillögur við fjárhagsáætlanagerð.

      1)

      Miðflokkurinn leggur til að Hafnarfjarðarbær hafi frumkvæði að því að leita til eigenda einkarekinna heilsugæslustöðva með það að markmiði að komið verði á fót slíkri heilsugæslustöð í bænum. Biðtími eftir tíma hjá heilsugæslulækni í Hafnarfirði er alltof langur. Biðtími á einkareknum heilsugæslustöðvum er mun styttri og boðleiðir markvissari. Vera kann að bærinn þurfi að liðka fyrir slíku með öflun húsnæðis eða afsláttar af fasteignaskatti til að byrja með. Raunveruleikinn er sú að fjölmargir Hafnfirðingar leita nú eftir heilsugæsluþjónustu utan sveitarfélagsins. Er lagt til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs til efnislegrar umræðu.

      2)

      Miðflokkurinn leggur til að farið verði í átak í að merkja bæjarhluta með sögulegri fræðslu um tilurð hvers svæðis. Um er að ræða svipaða útfærslu og fólk fær nú á strandstígnum. Kostnaður við hvert skilti með söguútskýringu af hálfu Byggðasafnsins er um 300.000 kr. Er lagt til að einstakir bæjarhlutar t.d. Vellirnir og Norðurbærinn fái tvö slík skilti hvort hverfi við fjölfarna göngustíga. Lagt er til að útbúin verði 8 slík skilti. Heildarkostnaður yrði því 2,4 milljónir króna. Er lagt til að málinu verði vísað til umhverfis- og framkvæmdaráðs til útfærslu og ákvörðunar.

      3)

      Miðflokkurinn leggur til að veitt sé 10 milljónum króna til hreinsunar gatna til að draga úr svifryki í andrúmslofti að vetrarlagi í bænum. Einn mesti orsakavaldur svifriks er slit sem bílar valda á gatnakerfinu ekki síst bílar á nagladekkjum. Á köldum dögum og þegar vindur er hægur mælist styrkur svifryks of oft yfir heilsuverndarmörkum. Við því verður að bregðast. Með átaki við þrif gatna með sérhæfðum götuþvottasóparabílum má draga verulega úr svifryki í andrúmslofti og fækka dögum þar sem svifryk fer yfir heilsuverndarmörk, íbúum til heilla. Er lagt til að málinu verði vísað til umhverfis og framkvæmdaráðs til ákvörðunar.

      4)

      Miðflokkurinn leggur til að sett verði fjármagn til að koma á fót kennslu fyrir fólk af erlendum uppruna þar sem börnum verður tryggð kennsla i sínu móðurmáli og þeim gert kleift að viðhalda menningu síns upprunalands og færni í tungumálinu. Fullorðnum verði veitt íslenskukennsla á mismundandi þyngdarstigum og námskeið í menningu og sögu íslendinga. Lagt er til að málinu verði vísað til fræðsluráðs til efnislegrar meðferðar.

      5)

      Miðflokkurinn leggur til að sett verði eyrnamerkt fjárhæð til að efla kennslu eldriborgara í snjallvæðingu með snjalltölvum. Slíkt vinnur gegn gegn félagslegri einangrun eldri borgara og getur í mörgum tilvikum aukið lífsgleði þeirra. Er lagt til að málinu verði vísað til fjölskylduráðs tul afgreiðslu.

      Þá tekur Guðlaug Kristjánsdóttir til máls og leggur fram svohljóðandi tillögur við fjárhagsáætlun:

      Tillaga 2 ? Aukið verði við stöðugildi fjölmenningarfulltrúa

      Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista leggja til að aukið verði við stöðugildi fjölmenningarfulltrúa úr 50% í 100%.

      Greinargerð:
      Á fundi fjölskylduráðs þann 5. nóvember sl. var sama tillaga lögð fram en hafnað af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista telja hins vegar brýnt að bæjarstjórn taki afstöðu til málsins, enda hafa ekki allir flokkar atkvæðisrétt á fundum fjölskylduráðs.
      Nauðsynlegt er að efla starf fjölmenningarfulltrúa frá því sem nú er til þess að styðja við það mikilvæga starf sem hann sinnir. Við gerð síðustu fjárhagsáætlunar óskaði fjölmenningarráð eftir því að stöðugildi fjölmenningarfulltrúar yrði aukið úr 50% í 100% en meirihlutinn hafnaði þeirri tillögu. Við teljum mikilvægt efla þessa starfsemi hjá bæjarfélaginu og leggjum því tillögunna fram í bæjarstjórn fyrir fjárhagsáætlun 2022 og óskum eftir að bæjarstjórn taki afstöðu til hennar.

      Einnig tekur til máls Jón Ingi Hákonarson og leggur fram svohljóðandi tillögur við fjárhagsáætlun:

      Tillögur Viðreisnar

      1.

      Að fjármagna að fullu starfsemi leikskóla Hafnarfjarðar. Það er gap á milli lögbundinnar þjónustu leikskóla og þjónustuþörf hafnfirskra barnafjölskyldna. Sú viðbótarþjónusta er ófjármögnuð sem hefur skapað erfiðleika við mönnun leikskólanna. Fjölgun stöðugilda virðist óhjákvæmileg vegna styttingar vinnuviku og sumaropnunar. (Fræðsluráð)

      2.

      50 milljónir til að bæta hjóla og göngustíga. Það er andvirði smærri gerðar hringtorgs. Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi fjölbreyttari umferðarmáta eins og rafhjóla o.fl. (Umhverfis og framkvæmdaráð)

      3.

      100 milljónum aukalega verði forgangsraðað til viðhalds á fasteignum bæjarins. Frestun á viðhaldi fasteigna mun eingöngu auka þann kostnað á næstu árum. (Umhverfis og framkvæmdaráð)

      4.

      Færa 20 milljónir til umhverfismála og trjáræktar. (Umhverfis og framkvæmdaráð)

      5.

      Vellíðan barna í grunnskóla á alltaf að vera forgangsmál. Viðreisn leggur til að bætt verði við stöðugildi sérfræðings á fræðslusviði t.a.m. þroskaþjálfa, talmeinafræðings eða iðjuþjálfa. (Fræðsluráð)

      6.

      Bætt verði við stöðugildi sálfræðings hjá Brúnni (Fræðsluráð og Fjölskylduráð)

      7.

      20 milljónir í greiningar og undirbúnings á deiliskipulagi vegna Borgarlínu (Skipulagsráð)

      8.

      140 milljónir í Betri Hafnarfjörð þar sem hvert hverfi fengi 20 milljónir til að ráðstafa í íbúakosningu. Þetta er ekki viðbót á framkvæmdafé heldur tilfærsla þar sem íbúar hafa meiri áhrif á forgangsröðun verkefna í sínu hverfi (Umhverfis og Framkvæmdaráð)

      Þá tekur Friðþjófur Helgi Karlsson til máls og leggur fram svohljóðandi tillögur við fjárhagsáætlun:

      Tillaga 7 – Starfsemi ungmennahúsa verði efld

      Fulltrúar Samfylkingarinnar endurflytja tillögu um að starfsmenni ungmennahúsa í Hafnarfirði verði efld.

      Greinargerð:
      Við umræðu um fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu um að starfsemi ungmennahúsa í Hafnarfirði yrði efld með fjölgun stöðugilda. Sú tillaga var felld af fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja fulla ástæðu til að endurflytja þessa tillögu nú, enda hefur á síðustu misserum komið í ljós hversu mikilvægt er að huga að andlegri líðan ungs fólks, ekki síst í miðri glímunni við heimsfaraldur Kórónuveirunnar. Ungmennahúsin bjóða upp á tómstundir við hæfi ungs fólks ásamt því að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi þar sem áhersla er lögð á fjölbreytileika og að allir upplifi sig velkomna.

      Í þessu ljósi er mikilvægt að fjölga stöðugildum og auka rekstrarfé til ungmennahúsanna Hamarsins og Músík og Mótor svo efla megi starf þeirra enn frekar.

      Tillaga að afgreiðslu: Vísað til frekari umfjöllunar í fræðsluráði og íþrótta- og tómstundanefnd.

      Tillaga 8 – Niðurgreiðsla á strætókortum

      Fulltrúar Samfylkingarinnar endurflytja tillögu um niðurgreiðslu á strætókortum fyrir börn að 18 ára aldri.

      Greinargerð:
      Mikilvægt er að jafna og auðvelda aðgengi ungmenna að tómstundum. Niðurgreidd stætókort hvetja einnig til aukinnar notkunar á almenningssamgöngum og styðja þannig við umhverfissjónarmið. Kostnaðarmat hefur áður verið gert og leggja fulltrúar Samfylkingarinnar
      til að það verði uppfært og tillagan tekin aftur til umfjöllunar.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni verði vísað til frekari umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði og bæjarráði.

      Tillaga 9 – Aukin lýsing við gangbrautir

      Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að lýsing verði aukin við gangbrautir.

      Greinargerð:
      Í auknum mæli notar fólk vistvæna ferðamáta og ferðast gangandi eða á hjólum af ýmsu tagi. Lýsingar við gangbrautir í bænum eru misgóðar og mikilvægt að bæta lýsingu þar sem þess er þörf til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að ráðist verði í endurbætur á lýsingu við gangbrautir þar sem henni er ábótavant.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni er vísað til frekari umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði.

      Tillaga 10 – Uppbygging á hagkvæmu húsnæði

      Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að Hafnarfjarðarbær leiti leiða til að fara í frekara og meira samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu hagkvæmra íbúða í bæjarfélaginu.

      Greinargerð:
      Í ljósi þeirrar erfiðu stöðu sem er á húsnæðismarkaði og fólksfækkunar á undanförnum árum í bænum leggja fulltrúar Samfylkingarinnar til að Hafnarfjarðarbær fari í frekara samstarf við óhagnaðardrifin leigufélög um uppbyggingu hagkvæmra leiguíbúða. Þannig verði hagkvæmum íbúðum á markaðnum fjölgað og bæjarfélagið gæti einnig fjölgað félagslegum íbúðum á vegum þess með þessari aðgerð.

      Tillaga að afgreiðslu: Tillögunni er vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

      Þá tekur Ágúst Bjarni Garðarsson til máls.

      Forseti ber næst upp tillögu um að framkomnum tillögum að breytingum á fjárhagsáætlun verði vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun í þeim ráðum sem þar er vísað til og þær eiga heima. Er það samþykkt samhljóða.

      Forseti leggur þá næst til að tillaga að fjárhagsáætlun 2022 og 2023 til 2025 verði vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn sem fari fram 8. desember nk. Er tillagan samþykkt samhljóða.

Ábendingagátt