Bæjarstjórn

4. maí 2022 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1890

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
  • Kristinn Andersen forseti
  • Jón Ingi Hákonarson 1. varaforseti
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður
  • Sigrún Sverrisdóttir aðalmaður

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.
Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að tvö mál, annars vegar nr. 1809417 – erindi SSH og og hins vegar mál nr. 1806149 – Kosning í ráð og nefndir, verði tekin inn á dagskrá fundarins. Er það samþykkt samhljóða.

Ritari

  • Ása Bergsdóttir Sandholt lögmaður á stjórnsýslusviði

Mættir eru allir aðalbæjarfulltrúar.
Kristinn Andersen forseti bæjarstjórnar setti fundinn og stýrði honum.
Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að tvö mál, annars vegar nr. 1809417 – erindi SSH og og hins vegar mál nr. 1806149 – Kosning í ráð og nefndir, verði tekin inn á dagskrá fundarins. Er það samþykkt samhljóða.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Í kjörstjórn þarf að skipta út fólki vegna nýrra krafna í kosningalögum.
      Frá Sjálfstæðisflokki verður Örn Tryggvi Johnsen að víkja og í stað hans kemur Guðmundur Jónsson, Spóaási 17, 221 Hafnarfirði.
      Frá Samfylkingu verður Ágúst Arnar Þráinsson að víkja og í stað hans kemur Ófeigur Friðriksson, kt. 010573-5489, Bröttukinn 24, 220 Hafnarfirði.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    • 2111310 – Óseyrarhverfi, deiliskipulag

      2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.apríl sl.
      Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna tillögu að deiliskipulagi Óseyrarhverfis.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Óseyrarhverfis verði auglýst og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
      Hugmynd um Hvaleyrarbraut í stokk er sett fram í greinargerð skipulagsins. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skoðaðir verða valkostir og kostnaðarmat vegna hugsanlega breytinga á skipulagi Hvaleyrarbrautar.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og svarar Ólafur Ingi andsvari og Adda María Jóhannsdóttir kemur að andsvari öðru sinni.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    • 2101519 – Ásland 4, deiliskipulag

      3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.apríl sl.
      Bæjarstjórn samþykkti þann 9. febrúar sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Áslands 4 samhliða breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Áslands 4 og 5. Tillagan gerir ráð fyrir blandaðri lágreistri byggð sérbýla og fjölbýla á 44 hektara svæði. Tillagan var auglýst tímabilið 25.2.2022-12.4.2022. Athugasemdir bárust. Umsögn skipulags- og byggingarsviðs lögð fram ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð þar sem m.a. fallið hefur verið frá notkun djúpgáma.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærða tillögu að deiliskipulagi Áslands 4 að teknu tilliti til framkominnar umsagnar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson. Til andsvars kemur Sigurður Þ. Ragnarsson og Ólafur Ingi svarar andsvari. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og Ólafur Ingi svarar andsvari og Adda María kemur að andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi svarar andsvari í annað sinn. Adda María kemur með stutta athugasemd.
      Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson. Til andsvars kemur Ólafur Ingi Tómasson og Sigurður Þ. svarar andsvari og Ólafur Ingi kemur að andsvari öðru sinni og Sigurður Þ. svarar andsvari í annað sinn.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

      Sigurðar Þ. Ragnarssonar kemur að svoljóðandi bókun:
      Bókun bæjarfulltrúa Miðflokksins. Enda þótt bæjarfulltrúi Miðflokksins samþykki þetta deiliskipulag undrast ég þá forræðishyggju sem er uppi vegna bygginga í hverfinu. Hér vísa ég til þess að þök sem hafa 15° halla eða minni, skulu klædd með grænu efni, s.s. torfi. Þegar fólk fær lóð til að byggja á tel ég svona forræðishyggju fæla frá frekar en laða að. Því lýsir bæjarfulltrúinn óánægju sinni með slíka forræðishyggju og bendir samhliða þessu á þær ógöngur sem lóðir í skarðshlíð rötuðu í þar sem farið var offari í forræðishyggju við byggingu húsa.

      Ágúst Bjarni Garðarsson kemur með svohljóðandi bókun fyrir fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar:

      Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vísar á bug fullyrðingum bæjarfulltrúa Miðflokksins um að skilmálar hverfisins séu með þeim hætti að þeir muni fæla væntanlega framkvæmdaaðila frá. Skilmálar hverfisins eru nokkuð hófsamir sé litið til sambærilegra hverfa annars staðar. Í Áslandi 4 mun byggjast upp nýtt og fallegt sérbýlishúsahverfi í bland við lítil fjölbýli.

    • 1811277 – Menntastefna

      1.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 27.aprí sl.
      Kynnt menntastefna Hafnarfjarðar. Ennfremur lögð fram fundargerð 7. fundar með menntaleiðtogum.

      Fræðsluráð samþykkir menntastefnu Hafnarfjarðar og vísar til frekari staðfestingar í bæjarstjórn.
      Fræðsluráð þakkar öllum þeim sem komu að vinnu við gerð stefnunnar, nemendum, starfsfólki og foreldrum ásamt starfsfólki mennta- og lýðheilsusviðs. Stefnan endurspeglar vilja barna starfsmanna, barna og foreldra til skóla- og frístundastarfs í Hafnarfirði þar sem lögð er áhersla á vellíðan, félagslegt öryggi og sjálfstæði. Borin er virðing fyrir ólíkum lífsháttum og fjölbreytni. Hvetjandi aðstæður verði til frístunda og náms sem styðja við frumkvæði, samvinnu og skapandi hugsun. Börn fái tækifæri til þess að þróa hæfileika sína í gegnum leik og nám á eigin forsendum og njóta stuðnings til að þroskast og dafna. Unnið verði að aðgerðaráætlun og innleiðingu, tímalínu og útdeilingu fjármagns næsta haust.

      Til máls tekur Kristín María Thoroddsen.
      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars við máli Jóns Inga kemur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Til andsvars við máli Jóns Inga kemur Kristín María og Jón Ingi svarar andsvari Kristínar Maríu.
      Til máls tekur Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir.
      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir og til andsvars kemur Kristín María.

      Bæjarstjórn samþykkir en Jón Ingi Hákonarson situr hjá.

      Jón Ingi Hákonarson gerir grein fyrir afstöðu sinni og leggur fram eftirfarandi bókun:
      Menntastefna Hafnarfjarðar sem unnið hefur verið að lungan úr kjörtímabilinu er ekki stefna heldur óskalisti. Það eru gríðarleg vonbrigði að ekki skuli liggja nothæf menntastefna.
      Hér eru engar tímasettar aðgerðr til að takast á við þær áskoranir sem skólastarf í Hafnarfirði mun þurfa að takast á á næstu árum. Engar aðgerðir til að
      – Takast á við málþroska og málskilning
      – Hvernig skuli efla og einfalda stoðkerfi við börn með sérþarfir
      – Hvernig auka eigi vægi listgreina og tæknigreina
      – Hvernig fjölga eigi fagmenntuðu fagfólki í leik og grunnskólum
      – Hvernig efla eigi frístundar og tómstundastarf
      – Hvernig eigi að aðstoða starfsfólk með handleiðslu og starfsþróun
      – Hvernig efla eigi nýsköpun í skólastarfi
      – Hvernig eigi að auka fjölbreytta menntun
      – Hvernig eigi að hanna skólabyggingar þannig að þær styðji við áskoranir ungs fólks eins og til dæmis einbeitingu

      Það vekur athygli að enginn fulltrúi sjálfstæðra skóla voru í starfshópnum.

    • 2105289 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2022 og 2023-2025

      1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.apríl sl.
      1.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 13.apríl sl.
      Lagður fram viðauki II við fjárhagsáætlun 2022. Umhverfis-og framkvæmdaráð samþykkir viðaukann og vísar til bæjarráðs.

      1.liður úr fjölskylduráði frá 22.apríl. sl.
      Guðmundur Sverrisson deildarstjóri hagdeildar mætir á fundinn og fer yfir viðauka og stöðu fjárhagsáætlunar sviðsins.

      Lagt fram og vísað til bæjarráðs.

      Rósa Steingrímsdóttir mætir til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir viðauka I og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Bæjarstjórn samþykkir en Helga Ingólfsdóttir situr hjá.

      Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr hjá og gerir grein fyrir hjásetu sinni og leggur fram svohljóðandi bókun:

      Framlagður viðauki er í mörgum liðum og með vísan í bókun sem ég lagði fram í Fjölskylduráði þann 8. April undir lið 2 get ég ekki samþykkt fyrsta lið í viðauka sem hér er lagður fram í dag og varðar útgjaldaaukningu vegna Sérhæfðrar akstursþjónustu fyrir fatlaða.
      Ég hefði að svo gjarnan viljað samþykkja þá liði sem snúa að viðbót við fjárfestingaáætlun og stöðugildi umsjónarmanns fasteigna en þar sem viðaukinn er borinn upp í einu lagi þá sit ég hjá við afgreiðsluna.

    • 2204281 – Straumhella 20 og 22, ósk um lóðarvilyrði

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.apríl sl.
      Lögð fram umsókn Oddafells ehf. um lóðarvilyrði fyrir lóðunum Straumhellu 20 og 22.

      Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði fyrir lóðunum Straumhellu 20 og 22 fyrir þá uppbyggingu sem fram kemur í umsókn. Skal vilyrðið gilda í 6 mánuði. Endanleg úthlutun lóða getur ekki farið fram fyrr en að lokinni skipulagsvinnu og að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    • 2204129 – Jötnahella 7, 9 og Tunguhella 14 og 16, ósk um lóðarvilyrði

      6.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.apríl sl.
      Lögð fram umsókn Hvaleyrar hf. um lóðarvilyrði fyrir lóðunum Jötnahella 7 og 9 og Tunguhella 14 og 16.

      Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði fyrir lóðunum Jötnahellu 7 og 9 og Tunguhellu 14 og 16 fyrir þá uppbyggingu sem fram kemur í umsókn. Skal vilyrðið gilda í 6 mánuði. Endanleg úthlutun lóða getur ekki farið fram fyrr en að lokinni skipulagsvinnu og að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    • 2203319 – Brynja hússjóður Öryrkjabandalagsins, beiðni um stofnframlög, 2022 og 2023

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 28.apríl sl.

      8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 31.mars sl.
      9.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 6.apríl sl.
      Leiðrétt bókun.

      Bæjarráð samþykkir að Hafnarfjarðarkaupstaður úthluti Brynju, Hússjóði ÖBÍ 12% stofnframlagi vegna kaupa á 10 íbúðum. Áætlað stofnframlag vegna kaupanna er samkvæmt umsókn 67.442.742.- kr. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    • 1809417 – Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB), kjörtímabil 2018-2022, samstarfssamningur

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka III við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018. Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði veitt ótakmarkað umboð til undirritunar viðaukans.

      Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    Fundargerðir

    • 2201211 – Fundargerðir 2022, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 26.apríl sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 27.apríl sl.
      Fundargerð fræðsluráðs frá 27.apríl sl.
      a. Fundargerðir íþrótta- og tómstundanefndar frá 12.og 19.apríl sl.
      Fundargerð fjölskylduráðs frá 22.apríl sl.
      Fundargerð bæjarráðs frá 28.apríl sl.
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 13.apríl sl.
      b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 25.apríl sl.
      c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 25.apríl sl.
      d. Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 1. apríl sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 2.maí sl.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

    Áætlanir og ársreikningar

    • 2203695 – Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2021 og fyrirtækja hans, síðari umræða.

      11.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 20.apríl sl.
      1. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 12. apríl sl.

      Bæjarráð vísar ársreikningi bæjarsjóðs Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

      Forseti ber þá upp tillögu um að ársreikningi Hafnarfjarðarkaupstaðar 2021 og fyrirtækja hans verði vísað til 2. umræðu sem fram fer í bæjarstjórn 4. maí nk. Er það samþykkt samhljóða.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og Rósa svarar andsvari og Adda María kemur að andsvari öðru sinni og Rósa Guðbjartsdóttir svarar andsvari í annað sinn.
      Næst til andsvars við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra er Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir.
      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson.
      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson og Adda María svarar andsvari og Ágúst Bjarni kemur að andsvari öðru sinni.
      Til máls tekur Sigðurður Þ. Ragnarsson.
      Til máls tekur Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir.

      Bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn samhljóða.

      Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks: Nýframlagður ársreikningur bæjarins endurspeglar aukinn fjárhagslegan styrk Hafnarfjarðarbæjar þrátt fyrir miklar áskoranir í rekstrarumhverfi sveitarfélaga á síðasta ári. Það sést ekki síst í stórauknum fjárfestingum og verulegri uppgreiðslu langtímalána. Á kjörtímabilinu hefur verið tekið á skuldavanda sem er enn þungur klafi á sveitarfélaginu. Það var og er vitað að verkið mun taka talsverðan tíma enda hafði bæjarfélagið verið komið undir eftirlitsnefnd ráðuneytis með fjármálum sveitarfélaga.
      Í ársreikningi Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2021 kemur fram að skuldaviðmiðið hélst óbreytt í 101% frá árinu áður. Það er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Skuldahlutfall Hafnarfjarðar lækkar verulega milli ára, eða úr 161% í 149%. Þessir mikilvægu mælikvarðar um fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélags hafa náðst hraðar niður en áætlanir og væntingar stóðu til.
      Þennan árangur má fyrst og fremst þakka ábyrgri fjármálastjórnun sem hefur gengið út á að framkvæma sem mest fyrir eigið fé bæjarins samhliða því að greiða niður eldri lán. Alls námu afborganir lána, á tímabilinu 2014-2021, 3,3 milljörðum króna umfram nýjar lántökur. Til dæmis voru engin ný lán tekin á síðastliðnu ári. Hafnarfjarðarbær er þó enn mjög skuldsett sveitarfélag og má lítið út af bregða í rekstrinum til að ekki fari illa. Það sem hefur langmest áhrif á niðurstöðu ársreikningsins er gríðarleg hækkun lífeyrisskuldbindingar sveitarfélagsins á árinu þegar nýir útreikningar tryggingasérfræðinga hækkuðu skuldbindingar bæjarins um 900 milljónir króna. Lífeyrisskuldbindingarnar eru nú um þriðjungur allra skulda og skuldbindinga bæjarins. Þess vegna er afar mikilvægt að halda lántökum í lágmarki á komandi árum, greiða áfram niður skuldir og lækka þannig vaxtakostnað til að geta haldið áfram að bjóða bæjarbúum góða þjónustu.
      Framtíðin er björt í Hafnarfirði og nú eru miklir uppgangstímar í bæjarfélaginu. Hin mikla lóðasala undir íbúða- og atvinnuhúsnæði hefur og mun skila bænum góðum tekjum, þar með talið varanlega auknum útsvarstekjum.
      Til að bæjarfélagið haldi áfram að vaxa og dafna er mikilvægt að haldið sé áfram á braut ábyrgrar fjármálastjórnunar.

      Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarnadi bókun:
      Undanfarin tvö ára hefur reksturinn skilað tapi upp á einn og hálfan milljarð á ári og það lítur út fyrir að taprekstur verði töluverður áfram næstu ár. Helsta skýring er aukinn launakostnaður.
      Niðurgreiðsla á langtímalánum hefur verið greidd með sölu eigna og lánum, reksturinn stendur ekki undir greiðslu lána. Slík fjármálastjórn gengur ekki til lengdar. Handbært fé frá rekstri mun ekki verða jákvætt á næstu árum.
      Þetta er í samræmi við það sem Viðreisn hefur varað við á kjörtímabilinu. Hér hefur ekki verið farið í neinar aðgerðir til að finna leiðir til að gera reksturinn hagkvæmari og skilvirkari. Það er ekki lengur hægt að fela sig á bak við söluna á HS Veitum.
      Fjármálastjórn meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks kjörtímabilið 2018 ? 2022 fær því miður falleinkunn.

      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir leggur fram eftirfarndi bókun fulltrúa Bæjarlistans: Niðurstaða síðustu 4 ára gefur alls ekki tilefni til að hér sé talað um góða fjárhagsstjórn af hálfu pólitíkurinnar, nema síður sé.
      Niðurstaða rekstrarins hjá okkur hefur legið niður á við á þessu kjörtímabili. Nú er svo komið að það er tap á rekstrinum upp á rúmar 700 milljónir. Þessi halli væri enn meiri ef ekki væri fyrir kipp í lóðasölu í bænum undanfarin ár, hefði hún verið minni væri tapið gríðarlegt.
      Veltufé ? sá peningur sem reksturinn á upp í skuldir ? er neikvæð stærð hér fyrir síðasta ár hvað varðar A hlutann, hinn eiginlega rekstur sveitarfélagsins. Það er grafalvarlegt mál. 2021 er neikvætt í Hafnarfirði upp á 14 milljónir. Fyrirtæki í svona stöðu væri ekki rekstrarhæft, hefði ekkert upp í skuldir sem er afar slæmt hvað varðar t.d. lánstraust.
      Lífeyrisskuldbinding
      Ég hef undanfarin ár tönnlast á því í fjárhags- og ársreikningaumræðum að Hafnarfjörður verður að fara að greiða inn á lífeyrisskuldbindinguna með forvirkum hætti.
      Það má ekki ganga lengur að bæjarstjórn líti á lífeyrisskuldbindingu sem fjarlægt fyrirbæri sem ekkert verði við ráðið. Það er ekki rétt. Hér hefði til dæmis verið gott að verja einhverju af 2,7 milljörðunum frá sölu meirihlutans á HS Veitum í þetta skóflustungu- og myndatökulausa verkefni. Þar var tækifæri, sem ekki var nýtt.
      Hafnarfjörður er að halda úti hlutfallslega of þungu kerfi
      Hagræðing á íþyngjandi stærðum á borð við skuldir og lífeyrisskuldbindingar verður ekki að veruleika nema reksturinn léttist. Það verður annað hvort í kjölfar íbúafjölgunar eða aðhaldsaðgerða og mun framtíðin leiða í ljós hvort verður ofan á.
      Um leið og ég þakka fyrir minn tíma á þessum vettvangi, óska ég nýrri bæjarstjórn á næsta kjörtímabili alls góðs og heilla í sínum störfum. Ég vona að sú bæjarstjórn verði fjölbreytt og skipuð allskonar fólki úr ólíkum áttum. Fjölbreytni er alltaf af hinu góða.
      Ég vil sérstaklega hvetja til þess að hagsmunir flokka verði aldrei settir framar hagsmunum bæjarins heldur skynsemin látin ráða. Ég vona að fólki auðnist að vinna vel saman og halda opnum tengslum milli meiri- og minnihluta þannig að allir kraftar séu nýttir. Þegar allt kemur til alls þá felst nefnilega í orðanna hljóðan að verkefnið okkar er að stjórna bænum sem fulltrúar bæjar.

      Sigrún Sverrisdótir leggur fram eftirfarandi bókun fyrir bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar: Í dag afgreiðir bæjarstjórn Hafnarfjarðar ársreikning fyrir árið 2021. Um leið skilar meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks af sér búi í hendur nýrrar bæjarstjórnar sem tekur við að loknum sveitarstjórnarkosningum þann 14. maí nk.
      Rekstrarniðurstaða fyrir árið 2021 er neikvæð um 1.480 m.kr. Rekstrarniðurstaða B-hluta fyrirtækja (Vatnsveitu, Fráveitu, Hafnarsjóðs og Húsnæðisskrifstofu) er hins vegar jákvæð um 771 m.kr. Þrátt fyrir að þær tekjur séu teknar með í reikninginn er rekstrarniðurstaða ársins 2021 með því lægsta um margra ára skeið og er nánast á pari við útkomu ársins 2009 í kjölfar efnahagshruns.
      Það er athyglisvert að fráfarandi meirihluti hafi ákveðið að halda útsvarsprósentu óbreyttri í slíku árferði enda hafa útsvarstekjur lækkað í hlutfalli við rekstrartekjur frá árinu 2018. Það skýrist þó einnig af því að íbúum í sveitarfélaginu hefur fjölgað mun hægar en víðast hvar annars staðar og í raun fækkaði þeim um 0,7% árið 2020 í fyrsta skipti í 80 ár, eða frá árinu 1939. Enn hefur Hafnarfjörður því ekki náð að fagna þrjátíu þúsund íbúum öðru sinni en því var fagnað með viðhöfn haustið 2019.
      Kjörtímabilið sem nú rennur sitt skeið hefur um margt verið óvenjulegt. Heimsfaraldur setti mark sitt á seinni hluta tímabilsins og fara þurfti í ýmsar aðgerðir því tengdar. Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks nýtti það ástand til að selja hlut sveitarfélagsins í HS Veitum án samráðs við fulltrúa annarra flokka í bæjarstjórn eða hina raunverulegu eigendur, íbúa sveitarfélagsins. Þrátt fyrir hagnaðinn af sölunni hefur veltufé frá rekstri verið í sögulegu lágmarki síðustu tvö ár.
      Einkavæðingarhugmyndir núverandi meirihlutaflokka eru þó ekki nýjar af nálinni. Nú þegar þessu kjörtímabili er að ljúka og eftir átta ára setu Sjálfstæðisflokksins í meirihluta er vert að rifja upp þær fjárhæðir sem bæjarsjóður hefur greitt vegna einkaframkvæmdasamninga sem Framsókn og Sjálfstæðisflokkur stóðu fyrir á árunum í kringum 2000 þegar skólabyggingar voru settar í einkaframkvæmd. Sú aðgerð hefur verið bæjarfélaginu dýrkeypt. Á seinustu tuttugu árum hafa leigugreiðslur numið um 5,6 ma. króna. Samningarnir renna út á árunum 2024-2027 og á enn eftir að greiða 1,5 ma þar til yfir lýkur. Alls munu þessir samningar því hafa kostað bæjarfélagið um 7 ma króna þegar þeir renna út, flestir á næsta kjörtímabili. Samkvæmt svörum við fyrirspurnum fulltrúa Samfylkingarinnar hafa engar ákvarðanir verið teknar um framhaldið, heldur er ábyrgðinni velt yfir á þá bæjarstjórn sem tekur nú við. Það er því mikilvægt að á næsta kjörtímabili taki við stjórn félagshyggjuflokkar sem ekki aðhyllast hugmyndir frjálshyggjunnar um einkavæðingu mikilvægra innviða samfélagsins.

      Sigurður Þ. Ragnarsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Miðflokksins: Þessi ársreikningur fyrir 2021, sem hér er til samþykktar, sýnir það sem stefnt hefur í á þessu kjörtímabili nl. umtalsverður taprekstur á sveitarfélaginu. A hlutinn er neikvæður um 1,5 milljarð, en A og B samtals 709 mkr. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar gripu til þess ráðs að selja eigur bæjarbúa til að eiga fyrir reikningum sveitarfélagsins. Það hefur aldrei verið góð hagstjórn að selja frá sér eigur, í þessu tilviki ágæta mjólkurkú, til að greiða reikninga. Hér er ég auðvitað að tala um söluna á hlut bæjarins í HS-veitum (gömlu Rafveituna) á kjörtímabilinu.
      Hjá því verður ekki litið að skuldir í krónum talið hafa hækkað frá 2017 um 10 milljarða króna. Það er ógnvænlegt í ljósi þess að bærinn skuldar nú yfir 50 milljarða króna og greiðir árlega um tæpa fjóra milljarða í afborganir og vexti þ.e. A hlutinn greiðir 1,5 milljarð í vexti og 1,5 milljarð í afborganir. A B hluti greiða 1,9 milljarða í vexti og 2 milljarða í afborganir eða samtals 3,9 milljarða í afborganir og vexti.
      Þegar lán eru tekin er nauðsynlegt að leggja fram tekju- og greiðslumódel um hvernig eigi að greiða fjármagnið til baka. Hér er hins vegar siglt áfram eins og skuldaaukning sé ekkert nema sjálfsögð. Það er heldur dapurlegt því afleiðinguna höfum við séð raungerast hjá meirihlutanum með því að selja hlutinn í innviðafyrirtækinu, HS-veitum, sem fórnað var á altari markaðshyggjunnar á alltof lágu verði sbr. matsvirði á fyrirtækinu í dag. Þessari sölu gleyma góðir og gegnir Hafnfirðingar ekki svo auðveldlega.

Ábendingagátt