Fjölskylduráð

13. nóvember 2020 kl. 13:30

á fjarfundi

Fundur 429

Mætt til fundar

  • Valdimar Víðisson formaður
  • Helga Ingólfsdóttir varaformaður
  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður
  • Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
  • Hulda Sólveig Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnarfulltrúi

Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.

Ritari

  • Karlott Gunnhildarson ritari fjölskylduráðs

Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 2001456 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 og 2022-2024

      Sérfræðingar frá fjármálasviði mæta á fundinn og fara yfir stöðu fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2021.

      Lagt fram.
      Umræður.

      Fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um fullnýtingu útsvars:
      Mun meirihluti Framsóknar – og Sjálfstæðisflokks, í ljósi þröngrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í kjölfar Kórónuveirufaraldursins, fullnýta útsvarið í Hafnarfirði? Erfitt er að rökstyðja hækkanir á gjaldskrám sem koma illa við viðkvæma hópa á erfiðum tímum á meðan meirihlutinn fullnýtir ekki skattstofna sveitarfélagsins.

Ábendingagátt