Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.
Fjárhagsáætlun fjölskyldu- og barnamálasviðs lögð fram.
Lagt fram til afgreiðslu tillögur um viðbætur í fjárhagsáætlun 2021.
Lækur Óskað eftir 80% viðbótar stöðugildi til sérfræðings til að efla faglegt starf á Læk. Kostnaður yrði 7,5 milljón.
Fjölskylduráð tók þá ákvörðun að flytja starfsemina til að bæta þjónustu við þann viðkvæma hóp sem nýtir sér þjónustuna á Læk. Flutt var í nýtt húsnæði að Staðarbergi í árslok 2020. Þjónustan endurskipulögð með hliðsjón af auknu rými og bættu aðgengi. Mikilvægt er að ramma starfsemina vel inn, m.a. með því að halda utan um mætingu þjónustuþega. Fjölskylduráð mun óska eftir slíkum upplýsingum eigi síðar en vorið 2021. Tillögu er hafnað.
Húsnæðisfulltrúi Á skrifstofu fjölskyldu- og barnamálasviðs er húsnæðisfulltrúi í 80% starfi. Starfsmaður sér um samskipti við leigjendur, tekur við kvörtunum, gerir húsaleigusamninga o.fl. Auk þess sér fulltrúinn um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Í ljósi fjölgunar íbúða og leigjenda síðustu árin kemst starfsmaðurinn ekki fyrir verkefni sín í 80% starfi. Óskað eftir aukningu um 20% og er kostnaður 1,2 milljón.
Fjölskylduráð samþykkir að auka starfshlutfall úr 80% í 100% með hliðsjón af auknu umfangi starfsins. Tillögunni vísað til bæjarráðs.
Barnvænt samfélag Hafin er innleiðing á Barnvænu samfélagi. Verkefnastjóri hóf störf haustið 2020 og stýrihópur verkefnisins hefur komið saman og hafið skipulagningu starfsins. Lagt er til að verkefnið hafi svigrúm til skýrslu- og bæklingagerðar, fræðslu o.fl. Kostnaður 500.000 kr. Fjölskylduráð samþykkir að veita 500.000 kr.til skýrslu- og bæklingagerðar, fræðslu o.fl. Tillögunni er vísað til bæjarráðs.
Fjölmenningarráð Fjölmenningarráð óskar eftir auknu stöðugildi fjölmenningarfulltrúa sem nú er í 50% stöðu. Óskað er eftir því að stöðugildið fari í 100%. Kostnaður 5 milljónir.
Staða fjölmenningarfulltrúa er nýtt starf sem þarf að þróa áfram. Um er að ræða mikilvægt starf fyrir þann fjölmenna hóp Hafnfirðinga sem eru af erlendu bergi brotnir. Mikilvægt að taka út starfið á næsta ári og skoða árangur áður en ákvörðun um aukningu á starfshlutfalli er tekin. Tillögu er hafnað. Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlistans sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Öldungaráð. Leggur til að endurskoðað sé viðmið vegna tekjutengingar frístundastyrkja.
Hafnarfjarðarbær er stoltur af því að vera eina sveitarfélagið með frístundastyrki fyrir eldri borgara. Tekjutenging var ákveðin vorið 2020.
Tillögu er hafnað.
Gjaldskrá Gjaldskrá á fjölskyldu- og barnamálasviði tekur mið af vísitölu og hækkar um 2,7% þann 1. janúar nk.
Þrátt fyrir þessa vísitöluhækkun er gjaldskráin í Hafnarfirði áfram með þeim lægri þegar borin eru saman samanburðarsveitarfélögin. Stuðst er við viðmið Sambands íslenskra sveitarfélaga um vísitöluhækkanir. Gjaldskrárhækkunin er samþykkt og er vísað í bæjarráð. Fulltrúi Samfylkingar situr hjá við afgreiðslu.
Fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um fullnýtingu útsvars: Mun meirihluti Framsóknar – og Sjálfstæðisflokks, í ljósi þröngrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins í kjölfar Kórónuveirufaraldursins, fullnýta útsvarið í Hafnarfirði? Erfitt er að rökstyðja hækkanir á gjaldskrám sem koma illa við viðkvæma hópa á erfiðum tímum á meðan meirihlutinn fullnýtir ekki skattstofna sveitarfélagsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks bóka eftirfarandi: Fjölskylduráð tekur ekki ákvörðun um útsvar í Hafnarfirði. Bæjarráð mun fjalla um útsvarið á fundi sínum þann 19. nóvember næstkomandi. Fyrirspurninni er vísað til bæjarráðs.
Fjölskylduráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða fjárhagsáætlun 2021. Fulltrúi samfylkingar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fjölskylduráð hefur lokið umræðu um fjárhagsáætlun 2021 og vísar henni til bæjarráðs. Starfsmönnum fjölskyldu- og barnamálasviðs og starfsmönnum fjármálasviðs eru þökkuð góð og fagleg störf í þessari vinnu.
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram eftirfarandi bókun: Fulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir þakkir til starfsmanna fjölskyldu- og barnamálasviðs. Þeir hafa unnið mjög gott og faglegt starf við erfiðar aðstæður. Ljóst er að vegna Kórónuveirufaraldurins að ýmsar áskoranir eru framundan í rekstri sveitarfélagsins. Samfylkingin leggur nú sem fyrr megináherslu á að verja störf og þjónustu sveitarfélagsins við viðkvæma hópa í þeirri flóknu vinnu sem framundan er. Fulltrúi Samfylkingarinnar furðar sig á því að meirihlutinn hafi ekki enn ákveðið hver útsvarsprósentan skuli vera á næsta ári á sama tíma og ákvarðanir um hækkun á gjaldskrám skuli liggja fyrir. Fulltrúi Samfylkingarinnar hvetur meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks til þess að fullnýta útsvarið frekar en að grípa til hækkunar á gjaldskrám. Í þessu samhengi er rétt að minna á miklar hækkanir við gerð síðustu fjárhagsáætlunar. Þá hækkaði heimaþjónusta fyrir aldraða og öryrkja um 24% og ferðaþjónusta aldraðra um 100%. Meirihlutinn hafði þannig að engu tilmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga um að styðja við lífskjarasamningana með því að hækka gjaldskrár ekki umfram 2,5%. Á meðan meirihlutinn fullnýtir ekki útsvarið en hækkar gjaldskrár þá hlífir meirihlutinn breiðu bökunum í samfélaginu á meðan hann leggur þyngri byrðar á viðkvæma hópa.
Erindisbréf starfshóps um félagslega heimaþjónustu er samþykkt. Skipað verður í starfshópinn á næsta fundi fjölskylduráðs, þann 4. desember nk.
Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimer-samtakanna mætir til fundarins og kynnir verkefnið Styðjandi samfélag.
Fjölskylduráð þakkar Vilborgu Gunnarsdóttur fyrir kynninguna. Fjölskylduráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna það áfram.
Sviðsstjóri kynnir hugmyndir um sameiginlegt úrræði á höfuðborgarsvæðinu fyrir jaðarsetta einstaklinga vegna covid-19.
Fjölskylduráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna það áfram.
Lagður fram til kynningar drög að samningi um rekstur sérhæfðrar heilabilunardagdvalarþjónustu á Sólvangi.
Lagt fram. Umræður.