Forsetanefnd

13. janúar 2017 kl. 15:00

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 44

Mætt til fundar

  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir forseti
  • Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti
  • Kristinn Andersen 2. varaforseti
  • Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Ívar Bragason Lögmaður
  1. Almenn erindi

    • 1407042 – Bæjarstjórn, starfsumhverfi

      Farið yfir drög að dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar sem verður miðvikudaginn 18. janúar n.k.

      Farið yfir drög að dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar.

    • 0706404 – Siðareglur kjörinna fulltrúa

      Tekið fyrir í bæjarstjórn 14. október 2015 og vísað aftur til forsetanefndar.

      Úr fundargerð bæjarstjórnar:
      1.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 12.okt.sl.
      Siðareglur kjörinna fulltrúa tekið fyrir að nýju.
      Forsetanefnd vísar drögum að siðareglum kjörinna fulltrúa til umræðu í bæjarstjórn.

      Einar Birkir Einarsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu:
      Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af drengskap og háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, starfsmönnum og viðskiptavinum bæjarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu hafa hugfast að orðspor allra kjörinna fulltrúa byggist á framgöngu sérhvers kjörins fulltrúa.

      Grein 2 myndi því hljóða í heild sinni svona:
      2. gr.
      Starfsskyldur kjörinna fulltrúa
      Kjörnir fulltrúar skulu í störfum sínum fylgja lögum, reglum og samþykktum Hafnarfjarðarbæjar, sem og sannfæringu sinni. Þeim ber að gæta almannahagsmuna og hagsmuna sveitarfélagsins.
      Kjörnir fulltrúar hafa ávallt í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum sínum, þ.m.t. gagnsæja og upplýsta ákvarðanatöku á grundvelli lögmætra og málefnalegra sjónarmiða.
      Í störfum sínum skulu kjörnir fulltrúar koma fram af drengskap og háttvísi og sýna hver öðrum, íbúum, starfsmönnum og viðskiptavinum bæjarfélagsins fulla virðingu í ræðu, riti og framkomu. Þeir skulu hafa hugfast að orðspor allra kjörinna fulltrúa byggist á framgöngu sérhvers kjörins fulltrúa.
      Kjörnum fulltrúum ber að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar og tilgreina þá þætti sem ákvarðanir þeirra eru byggðar á. Þeir skulu bera ábyrgð gagnvart bæjarbúum í heild sinni og svara fyrirspurnum almennings um framkvæmd þeirra starfa sem þeir bera ábyrgð á sem kjörnir fulltrúar.
      Kjörnum fulltrúum ber að virða fjárhagsáætlun og grundvallarreglur um fjármálastjórn sem tryggja réttmæta og ábyrga meðferð á almannafé sveitarfélagsins.

      Bæjarstjórn samþykkir með 10 samhjóða atkvæðum að vísa liðnum aftur til forsetanefndar.

      Forsetanefnd samþykkir að óska eftir áliti siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga á framkominni breytingartillögu.

Ábendingagátt