Fræðsluráð

6. apríl 2016 kl. 13:00

í Krosseyri, Linnetsstíg 3

Fundur 346

Mætt til fundar

  • Einar Birkir Einarsson aðalmaður
  • Hörður Svavarsson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Sverrir Garðarsson aðalmaður
  • Kristinn Andersen varamaður

Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Magnús Baldursson, sviðsstjóri, Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Vigfús Hallgrímsson, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi, þróunarfulltrúi grunnskóla, Kristín Guðnadóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Kristinn Guðlaugsson, fulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Sigrún Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Sigríður Ólafsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Arnrún Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsmanna leikskóla.

Ritari

  • Elísabet Sverrisdóttir

Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Magnús Baldursson, sviðsstjóri, Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Vigfús Hallgrímsson, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi, þróunarfulltrúi grunnskóla, Kristín Guðnadóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Kristinn Guðlaugsson, fulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Sigrún Kristinsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Sigríður Ólafsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Arnrún Einarsdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsmanna leikskóla.

  1. Almenn erindi

    • 1510104 – Skólastefna 2015

      Lögð fram fundargerð 11. fundar starfshóps.

      Lagt fram.

    • 1602430 – Gjaldfrjáls leikskóli

      Lögð fram fundargerð 2. fundar starfshóps

      Lagt fram.

    • 1603659 – Dagforeldri.is

      Lagt fram bréf ódags. frá Magnúsi Karli Daníelssyni varðandi vefinn www.dagforeldri.is sem áformað er að fari í loftið á vormánuðum.

      Erindi vísað til skoðunar í starfshóp um málefni dagforeldra.

    • 1301760 – Símenntun grunnskólakennara SSH

      Kynnt vinnustofa um nám og kennslu í grunnskólum sem fer fram laugardaginn 9. apríl nk. Námsstefnan ber yfirskiftina “Að kenna margbreytilegum nemendahópi” og er á vegum samráðshóps um símenntun grunnskólakennara á höfuðborgarsvðinu og Menntavísindasviðs HÍ.

      Þróunarfulltrúi grunnskólana var með kynningu.

    • 1410618 – Dagforeldrar - leyfisbeiðnir

      Lögð fram umsókn um endurnýjun á starfsleyfi frá Sigríði Júlíusdóttur.
      Daggæslufulltrúi mælir með umsókninni.

      Samþykkt.

    • 1601182 – Skólaskipan í Suðurbæ

      Tekið til umræðu á ný.

      TLögð fram svohljóðandi tillaga ásamt greinargerð:

      “Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundaþjónustu að gera kostnaðarúttekt á þeim möguleikum sem nefndir eru í minnisblaði, dagsettu þann 29. febrúar 2016, hvað varðar fjölgun leikskólaplássa í Suðurbæ.”

      Greinargerð:
      Fræðsluráð óskaði eftir því á fundi sínum 13. janúar sl., að gerð yrði úttekt á þörf fyrir leikskólapláss í Suðurbæ og að metnir yrðu þeir möguleikar sem eru í stöðunni. Minnisblað var lagt fram á fundi ráðsins þann 9. mars sl. þar sem farið var yfir leikskólapláss í bænum og hverfi voru borin saman með tilliti til fjölda barna og leikskólaplássa. Í minnisblaðinu kemur fram að fæst leikskólapláss miðað við fjölda barna eru í Vallahverfinu og í Suðurbæ. Leikskólinn Bjarkalundur verður opnaður í Vallahverfinu á komandi hausti, en þar er alls gert ráð fyrir 100 leikskólabörnum. Auk þess er undirbúningur hafinn að byggingu nýs leik- og grunnskóla í Skarðshlíð sem áætlað er að hefji starfsemi haustið 2017. Í minnisblaðinu kom fram að á deiliskipulagi við Öldugötu er 4-6 deilda leikskóli sem gæti mætt þessari þörf á leikskólaplássum innan hverfis. Að auki eru til teikningar sem gera ráð fyrir að leikskólinn Brekkuhvammur stækki um tvær deildir.
      Tilgangur tillögunnar er að gera fræðsluráði betur kleift að meta þá kosti sem í stöðunni eru, þannig að hægt verði að taka afstöðu til þess hvaða leiðir eru ákjósanlegastar og hvenær mögulegt verði að fara í slíkar framkvæmdir.

      Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna óska bókað:
      “Við fögnum því að fulltrúar meirihlutans hafi loks áttað sig á hversu illa Suðurbær er staddur hvað varðar leikskólapláss. Við teljum hins vegar ekki nóg að einungis sé horft til framtíðar heldur einnig mikilvægt að bregaðst við þeim vanda sem blasir við nú. Við leggjum því til eftirfarandi:
      1)Við gerum það að tillögu okkar að starfsstöð Brekkuhvamms við Hlíðarbraut verði haldið opinni þar til ný úrræði fyrir hverfið hafa fengist.
      2)Þá óskum við eftir því að skoðaðir verði möguleikar á því að útideild sem starfrækt hefur verið í Kaldársseli á vegum leikskólans Víðivalla verði flutt undir verksvið starfsstöðvarinnar við Hlíðarbraut þannig að það frábæra verkefni verði fram haldið og skapi þannig um leið fleiri pláss í Suðurbæ. Verkefnið var upphaflega sett á laggirnar m.a. til að bregðast við skorti á leikskólaplássum og því ekki úr vegi að það fái nú endurnýjað hlutverk á þeim stað þar sem þörfin er mest.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Sverrir Garðarsson”

      Tillaga 1 frá minnihluta var felld með þremur atkvæðum meirihluta gegn tveimur atkvæðum minnihluta.

      Tillaga 2 frá minnihluta var felld á jöfnu, tveir samþykktu og tveir voru á móti og einn sat hjá.
      Bókun:

      Upphafleg tillaga sem lá fyrir fundinum var samþykkt samhjóða.

      Fulltrúar Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks leggja fram svohjóðandi bókun. “Með tillögu meirihlutans er fram haldið frekari uppbyggingu á leikskólaþjónustu í bænum, sem er núna betri en áður hefur þekkst.”

    • 1603075 – Sérúrræði í grunnskólum

      Tekið fyrir að nýju.

      Fræðsluráð óskar umsagnar grunnskóla og foreldraráðs Hafnarfjarðar um tillögur starfshópsins og þær berist eigi síðar en 27.apríl nk. Jafnframt er sviðstjóra falið að hefja undirbúning að málþingi um sérúrræði í grunnskólum sem verði haldi í maímánuði.

    • 1008206 – Barnaskóli Hjallastefnunnar

      Lagður fram tölvupóstur frá Hjallastefnunni þar sem tilkynnt er að miðdeild grunnskólans verði ekki starfrækt að þessu skólaári loknu.

      Lagt fram.

    • 1504309 – Staða innritunar leikskóla

      Þróunarfulltrúi leikskóla fer yfir stöðu innritunar fyrir haustið.

      Innritun hefur gengið vel núna í vor og hafa öll börn sem uppfylla samþykktan innritunaraldur fengið pláss, þeas. apríl – desember 2014 og janúar – febrúar, mars 2015.

    Leikskólamál

    • 1603008F – Íþrótta- og tómstundanefnd - 226

      Íþrótta- og tómstundafulltrúi óskaði eftir að taka á dagskrá fundargerð Íþrótta- og tómstundanefndar frá 1. apríl 2016.

      Fræðsluráð samþykkir að frítt verði í sund Sumardaginn fyrsta.

Ábendingagátt