Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Hrönn Bergþórsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Þórey Ósk Sæmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Inga Líndal Finnbogadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Hulda Þórarinsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Stefán Már Gunnlaugsson, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Lögð fram skóladagatöl fyrir grunnskóla í Hafnarfirði skólaárið 2018-2019.
Fræðsluráð staðfestir skóladagatöl grunnskóla 2018-2019 og með fyrirvara hjá þeim sem vantar.
Lagðar fram fundargerðir 4., 5. og 6. fundar starfshóps og 3., 4. og 5. fundar stýrihóps um starfsaðstæður í leikskóla.
Lagt fram.
Lögð fram eftirfarandi tillaga stýrihóps um starfsaðstæður í leikskólum.
“Lagt er til að sveitarfélagið geri tilraun með styttingu vinnuviku leikskólastarfsmanna líkt og verið er að þróa hjá sumum öðrum rekstraraðilum leikskóla. Fræðsluskrifstofu verði falið að auglýsa meðal leikskóla eftir leikskólum sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu. Sé áhugi fyrir slíku verkefni er Fræðslu og frístundaþjónustu falið að þróa tilraun til eins árs með 35 stunda vinnuviku í leikskólum sem það kjósa og uppfylla þær forsendur sem í verkefninu felast eftir að Fræðsluþjónustan hefur þróað tilraunina.”
Fræðslustjóra falið að kanna möguleika og leiðir að útfærslu þróunarverkefnis um styttri vinnuviku í leikskólum og leggi tillögur þar um fyrir fræðsluráð.
Lögð fram eftirfarandi tillaga, stýrihóps um starfsaðstæður í leikskólum, um endurskilgreiningu á rými.
“Starfshópur um bætta aðstöðu í leikskólum leggur til við Fræðsluráð að leikrými barna verði skilgreint upp á nýtt. Einungis verði talið til leikrýmis það rými sem börnin hafa að jafnaði aðgang að til leiks allan daginn. Því verði það sem kallað er leikrými, rými sem tilheyrir deild barnsins að frádregnu plássi sem fer undir fastar innréttingar og því rými sem tilheyrir salernis- eða fataaðstöðu.
Það er mikil nauðsyn að gera þessar breytingar á skilgreiningunni hið fyrsta. Fjöldi fermetra sem í dag er skilgreindur sem leikrými er ekki of mikill en það sem veldur verulegum vandræðum og slæmum aðbúnaði barna í sumum skólum er að sameiginlegt rými sem börnin eiga eingöngu stundum aðgang að, er talið til leikrýmis. Þannig eru dæmi um að börn sem ættu að hafa 3,5 fermetra til leiks hafi að jafnaði eingöngu 1,8 fermetra til leiks á deildinni sinni. Það má öllum vera ljóst að slíkt er óviðunandi.”
Fræðslustjóra falið að taka saman þau áhrif sem tillagan hefur á nýskilgreind viðmið um leikrými og heildarrými barna í leikskólum Hafnarfjarðar.
Tveggja mánaða uppgjör kynnt.
Lögð fram fundargerð 267. fundar ÍTH.
Björn Guðbrandur Jónsson framkvæmdastjóri Gróður fyrir fólk og Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt á umhverfis- og skipulagsþjónustu kynntu verkefnið.
Lagt fram bréf skólastjóra Tónlistarskóla Hafnarfjarðar þar sem hann segir starfi sínu lausu.
Lagt fram bréf leikskólastjóra Bjarkalundar þar sem hann segir starfi sínu lausu.