Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Sólveig Kristjánsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, , Inga Líndal Finnbogadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Hulda Þórarinsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristjana Ósk Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Á fundi bæjarstjórnar 11. apríl sl. var samþykkt tillaga um breytingu á fulltrúum Bjartrar framtíðar í fræðsluráði þar sem varamaðurinn Þórunn Blöndal, Brekkugötu 7, fer úr ráðinu og í hennar stað tekur sæti varamanns Áshildur Hlín Valtýsdóttir, Ljósabergi 48, 221 Hafnarfirði.
Tekið upp aftur mál varðandi rekstur á gæsluvellinum Róló og lögð fram tillaga starfsmanna fræðslu- og frístundaþjónustu að starfsemi gæsluvallar í Hafnarfirði.
Lagt fram.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi kynnti drög að auknum frístundaakstri næsta haust.
Fræðsluráð fagnar því að búið sé að útfæra aukinn frístundaakstur í Hafnarfirði en frá og með komandi hausti mun fleiri börnum en nú, þ.e. 8 og 9 ára, standa þjónustan til boða og öllum íþrótta- og frístundafélögum boðin þátttaka. Með þessu er aukið aðgengi hafnfirskra barna að tómstundum, vinnudagur barna styttist, íþróttamannvirkin nýtast betur og þjónustan við fjölskyldur eykst.
Fyrstu hugmyndir að grunnskóladagatali fyrir leik- og grunnskóla skólaárið 2019-2020 lagt fram til umræðu.
Skóladagatöl leik- og grunnskóla lögð fram til samþykktar.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.
Skýrsla um ungmennahús lögð fram.
Í henni er kynnt starfsemi ungmennahúsa á Íslandi, svör lykilstjórnenda í Hafnarfirði vegna hugmynda um ungmennahús og könnun meðal ungs fólks um viðhorf og hugmyndir þeirra varðandi ungmennahús.
Fræðsluráð óskar eftir rekstrar- og kostnaðaráætlun fyrir ungmennahús.
Fulltrúi Samfylkingar lagði fram eftirfarandi bókun;
“Það er alveg á hreinu að vilji og þörf er, og hefur alltaf verið, fyrir Ungmennahúsi í Hafnarfirði. Það er alveg ótrúlegt að finna að málflutningur minn hefur ekki náð til eyrna fulltrúa meirihlutans í Fræðsluráði um hversu mikilvæg starfsemi fer fram í Ungmennahúsum um allt land. Úttekt þessi og skýrsla er góð en segir nákvæmlega það sem haldið hefur verið fram og voru nákvæmlega sömu rök þegar reist var Ungmennahús í Hafnarfirði árið 2003. Nú má engan tíma missa og hefjast þarf handa strax við að koma starfseminni á laggirnar aftur í samstarfi og samtali við Ungmennaráð, Flensborg og Tækniskólann.”
Fulltrúi Samfylkingarinnar leggja því fram þessa tillögu: “Fræðslu- og frístundaráð leggur til að Íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins hefjist handa strax við undirbúning Ungmennahúss í Skattstofunni í Hafnarfirði sem verður opnuð, með prýði, í byrjun september þessa árs.”
Afgreiðslu tillögunar frestað til næsta fundar.
Lögð fram fundargerð númer 268. fundar frá íþrótta- og tómstundanefnd.
Leikskólapláss á miðbæjarsvæði. Gert er ráð fyrir að undirbúningur á byggingu leikskóla í suðurbæ/miðbæ fari af stað á árinu í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið. Framkvæmdir hefjist síðan á árinu 2019 og ljúki árið 2020.
Fræðsluráð óskar eftir því að undirbúningur hefjist við uppbyggingu leikskóla í suðurbæ/miðbæ samkvæmt því sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Fulltrúi Samfylkingarinnar lagði fram eftirfarandi bókun;
“Fulltrúi Samfylkingarinnar fögnum því að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar ætli loksins að ávarpa þann mikla skort á leikskplássum sem blasað hafa við íbúum í Suðurbæ frá því að starfsstöðinni við Hlíðarbraut (Kató) var lokað. Það þarf þó að taka mun ákveðnari skref í málinu en hér eru lögð fram og lítið fé lagt til málsins á árinu. Fulltrúar meirihlutans hafa ekki sýnt þessu máli neinn áhuga allt kjörtímabilið og eru nú með óljós loforð inn á næsta kjörtímabil. Það er of lítið og of seint fyrir íbúa í Suðurbæ.
Ekki er komin staðsetning fyrir leikskólann þó fyrir liggi í skipulagi lóð við Öldurnar svokölluðu og ekki er búið að tryggja nægilegt fé í framkvæmdirnar á næstu 3 árum. Einnig er ekki búið að taka ákvörðun um hversu marga nemendur leikskólinn mun hýsa eða hvort gert er ráð fyrir ungbarnadeild innan leikskólans. Því segir þessi bókun meirihlutans lítið annað en að byggja eigi leikskóla í Suðurbænum sem á að vera lokið eftir 2 ár.
Ef markmiðum um að öll börn í bænum fái leikskólapláss við 12 mánaða aldur þarf að vera í mun metnaðarfylltri uppbyggingu í öllum hverfum bæjarins. Ekki er til nein áætlun um hvernig á að ná þeim markmiðum, það er miður og sýnir metnaðarleysi.
Kynntar vímuefnaneyslutölur nemenda í 8. – 10. bekk en könnun var gerð í febrúar 2018.
Fræðsluráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að fá nánari upplýsingar og greiningar á stöðunni í Hafnarfirði og koma með tillögur að viðbrögðum og næstu skrefum.
Tillaga starfshóps um starfsaðstæður í leikskólum um aukin stöðugildi vegna fjögurra og fimm ára barna lögð fram.
Fræðsluráð óskar eftir kostnaðargreiningu á tillögunni á næsta fundi.
Til umræðu.