Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Eiríkur Þorvarðarson, deildarstjóri greiningar og ráðgjafar, Guðmundur Sverrisson, sérfræðingur á fjármaálsviði, Ingibjörg Magnúsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Elín Soffía Harðardóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Oddfríður Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ásrún Sigrid Steindórsdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Lögð fram samþykkt frá fundi bæjarstjórnar þann 8. desember sl. um að Bergur Þorri Benjamínsson tilkynnir afsöng úr ráðinu og í hans stað kemur Guðbjörg Oddný Jónasdóttir.
Teknar fyrir að nýju tillögur sem var vísað til fræðsluráðs frá fundi bæjarstjórnar þann 25.nóvember sl. Minnisblað mennta- og lýðheilsusviðs um tillögur Samfylkingar og Viðreisnar fyrir fjárhagsáætlun 2021 lagt fram.
Tillaga 1 frá fulltrúa Samfylkingar. Lagt er til að ráðið verði í 50 – 100% starf forvarnarfulltrúa. Mikilvægt er að ráðinn verði forvarnarfulltrúi í 50 – 100% starf sem heyra myndi undir íþrótta- og tómstundafulltrúa. Það er ljóst að ungt fólk hefur upplifað talsverða vanlíðan og erfiðleika í tengslum við heimsfaraldur kórónuveirunnar og einhver hópur hefur flosnað upp úr námi. Því er mikilvægt að setja inn aukið fé til að styðja við ungt fólk á þessum erfiðu tímum og koma í veg fyrir að það leiti í auknum mæli í neyslu og annan óheilbrigðan lífsstíl. Öflugar forvarnir eru afar mikilvægar til að hægt sé að takast á við eftirköst faraldursins og draga úr þeim skaða sem hann getur valdið hjá ungu fólki í samfélaginu.
Fræðsluráð samþykkir að fela sviðsstjóra að leita leiða innan sviðsins við lausn málsins. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir tekur undir að mikilvægt er að Hafnarfjarðarbær hafi starfsmann sem hafi það hlutverk að sinna þessu mikilvæga málefni.
Fulltrúi Bæjarlistans leggur fram eftirfarandi bókun, fulltrúar Samfylkingar, Viðeisnar og Miðflokks taka undir bókunina. Starfshópur um forvarnir í Hafnarfirði skilaði af sér skýrslu haustið 2019 og í kjölfar þess átti faghópur að taka til starfa sem ætti að fylgja eftir tillögum starfshópsins og móta aðgerðaráætlun. Fram hefur komið að sú vinna hafi ekki farið af stað sökum Covid verkefna. Forvarnir eru eitt stærsta covid verkefnið sem sveitafélagið stendur frammi fyrir. Þess vegna er gífurlega mikilvægt að þessi vinna verði hafin nú þegar. Til þess að þær tillögur sem faghópurinn komi með geti farið sem fyrst til framkvæmda leggur fulltrúi Bæjarlistans í fræðsluráði til að tekin verði til hliðar ákveðin upphæð sem eyrnamerkt verður þeirri vinnu og úrræðum sem lögð verða til.
Tillaga 2 frá fulltrúa Samfylkingar. Efla starfsemi Ungmennahúsana í Hafnarfirði. Fjölga þarf stöðugildum og rekstrarfé til Hamarsins og Músík og Mótor svo efla megi starf þeirra enn frekar. Það er mikilvægt að ungu fólki, 16 – 25 ára sé boðið upp á fjölbreytta þjónustu ekki hvað síst á þeim skrítnu og erfiðu tímum sem við lifum nú á. Það eru vísbendingar um verri andlega líðan þessa aldurshóps og meiri einangrun einstaklinga innan hans sem kalla á tafarlausar aðgerðir. Ungmennahúsin gegna mismunandi hlutverki í tómstundastarfi hafnfirskra ungmenna en hafa sameiginleg markmið um að stuðla að menningu og bættri þjónustu við ungmennin í gegnum þau verkefni sem þau taka þátt í. Hlutverk ungmennahúsanna er tvíþætt, annarsvegar að bjóða ungmennum upp á tómstundir sem hafa forvarnar-, uppeldis- og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hins vegar er hlutverk þeirra að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi. Áhersla er lögð á fjölbreytileikann og að allir upplifi sig velkomna. Við leggjum því til að fjölgað verði um 2 stöðugildi í Hamrinum og 1 stöðugildi í Músík og Mótor á næsta fjárhagsári.
Tillagan er felld með þremur atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúi Samfylkingar greiðir atkvæði með tillögunni en fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja fram eftirfarandi bókun; Starfsemi ungmennahússins hefur sannarlega sannað gildi sitt fyrir heimsfaraldur og nú á tímum covid þrátt fyrir ýmsar áskoranir og nauðsynlegar breytingar á hefðbundnu starfi sínu. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir sjá ekki ástæðu til að fjölga stöðugildum í Hamrinum né í Músik og mótor enda hefur ekki legið fyrir ósk frá forstöðumönnum ungmennahúsanna um slíkt eins og getið er til í minnisblaði mennta- og lýðheilsusviðs. Músik og mótor fengu nýlega starfsmann frá vinnumálastofnun í 70% tímabundið starf til haustsins 2021. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir leggja áherslu á áframhaldandi gott samstarf og aukna samvinnu milli Hamarsins og Músik og mótors.
Tillaga 3 frá fulltrúa Samfylkingar. Þróunar- og nýsköpunarsjóður leik- og grunnskóla. Nýsköpunar- og þróunastarf er mikilvægur hluti skólastarfs. Við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu nú um stundir þá er afar mikilvægt að hvetja til þess að efla faglegt starf í skólum svo sem þróun kennsluaðferða og tækni sem hægt er að nota til hagsbóta fyrir nemendur í skólum bæjarins. Áætlað er að leggja 23 milljónir í þennan sjóð á næsta ári. Það er langt frá því að vera nóg við núverandi aðstæður. Því leggjum við til að lagðar verði 50 milljónir til viðbótar í þróunar- og nýsköpunarsjóð leik- og grunnskóla sem bæði opinberir aðilar og einkaðilar geta sótt fjármagn í til að þróa nýjar lausnir og aðferðir til hagsbóta fyrir hafnfirska nemendur. Tillagan er felld með þremur atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra. Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar samþykkja tillöguna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja fram eftirfarandi bókun; Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir hafna því tillögu Samfylkingarinnar um að hækka fjármagn í umræddan sjóð og telur þá upphæð sem nú þegar hefur verið lagða til ásættanlega.
Tillaga 4 frá fulltrúa Samfylkingar. Uppbygging leikskóla í Öldutúnsskólahverfi Við fulltrúar Samfylkingarinnar leggjum til að hafist verði handa án tafa við frekari uppbyggingu á leikskóla í skólahverfi Öldutúnsskóla. Það er fyrirséð að með fjölgun íbúa í hverfinu, breytinga á aldurssamsetningu vegna endurnýjunar í hverfinu sem og með frekari áætlunum um lækkun á inntökualdri muni þörfin í hverfinu síst fara minnkandi og því mikilvægt að horfa til framtíðar. Ráðist verði þegar á næsta ári í að byggja upp þessa mikilvægu grunnþjónustu innan hverfisins með áherslu á að samnýta grunnstoðir leik- og grunnskóla og draga þannig úr aðgreiningu milli skólastiga.
Tillagan er felld með þremur atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra en fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar samþykkja tillöguna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra leggja fram eftirfarandi bókun, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir geta ekki tekið undir tillögu Samfylkingarinnar um fjölga stöðugildum innan fjölskyldu- og skólaþjónustu Brúarinnar en í minnisblaði mennta- og lýðheilsusviðs segir að ekki sé tímabært að bæta við stöðugildum sálfræðinga þar að svo stöddu. Brúin er verklag sem enn er í þróun og innleiðingu og því mikilvægt að sú þróun fái að eiga sér stað áður en skoðað verður hvor tog með hvaða hætti efla þarf verklag og úrræði kerfisins í heild og þar með verklag Brúarinnar þar sem verklag Brúarinnar er verklag innan allra skóla og skólaþjónustu auk fjölskyldu- og barnamálasviðs. Hafnarfjörður er eitt skólahverfi hvort sem um er að ræða leik- eða grunnskóla. Ekki er talin þörf á fleiri leikskólaplássum en nú eru ef marka má tölur í minnisblaði um íbúaþróun og fjölda leikskólaplássa í Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir geta því ekki fallist á tillögu Samfylkingarinnar um að þörf á nýjum leikskóla í umræddu hverfi að svo stöddu. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir bendir þó á að til er heimild fyrir stækkun Smáralundar um tvær leikskóladeildir og tekur undir hugmynd mennta- og lýðheilsusviðs að ef og þegar þörf er á að fjölga leikskólaplássum verði hægt að hugsa til þess að samnýta skólahúsnæði leik- og grunnskóla á lóð Öldutúnsskóla þegar ráðist verður í endurbætur á húsnæði grunnskólans.
Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun; Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar hvetja til þess að uppbygging verði hafin á leikskóla í Suðurbæ hið fyrsta og eins og umsögn sviðsins minnist á þá mætti það gjarnan gerast um leið og ráðist verður í endurbætur á Öldutúnsskóla sem mikil þörf er á og ætti að vera forgangsmál. Það er að okkar mati ekki boðlegt að ár eftir ár séu börn sem ekki komast fyrsta árið á leikskóla í sínu hverfi. Við tölum mikið um að við séum barnvænt samfélag og fjölskylduvænt samfélag en það að fjölskyldur þurfi að keyra börnin sín langa leið jafnvel þó það sé bara eitt ár af skólagöngu barnanna okkar á fyrsta skólastiginu það eykur á álag á heimilum, það eykur umferðina á götunum í bænum okkar sem er bæði óumhverfisvænt og ekki eins öruggt og að sækja skóla í nærumhverfinu.
Tillaga 5 frá fulltrúa Samfylkingar. Efla starf Brúarinnar með fjölgun stöðugilda. Fjölga þarf stöðugildum og efla enn frekar starf Brúarinnar. Það er ljóst að þverfaglegt starf í grunnskólum bæjarins hefur aldrei verið eins mikilvægt og nú um stundir. Í kjölfar farsóttarinnar og þeirra efnahags- og félagslegu áhrifa sem hún hefur haft verður mikil þörf á að mæta nemendum í leik- og grunnskólum með markvissum hætti með snemmtækri íhlutun. Því er það tillaga okkar að í það minnsta tveimur stöðugildum verði bætt við til að efla þetta mikilvæga starf strax á næsta ári. Tillagan er felld með þremur atkvæðum frá fulltrúm Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra, fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar samþykkja tillöguna.
Fulltrúar Sjálfstæðinsflokks og Framsóknar og óháðra leggja fram eftirfarandi bókun, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og óháðir geta ekki tekið undir tillögu Samfylkingarinnar um fjölga stöðugildum innan fjölskyldu- og skólaþjónustu Brúarinnar en í minnisblaði mennta- og lýðheilsusviðs segir að ekki sé tímabært að bæta við stöðugildum sálfræðinga þar að svo stöddu. Brúin er verklag sem enn er í þróun og innleiðingu og því mikilvægt að sú þróun fái að eiga sér stað áður en skoðað verður hvor tog með hvaða hætti efla þarf verklag og úrræði kerfisins í heild og þar með verklag Brúarinnar þar sem verklag Brúarinnar er verklag innan allra skóla og skólaþjónustu auk fjölskyldu- og barnamálasviðs.
Fulltrúi foreldraáðs grunnskólabarna leggur fram eftirfarandi bókun, fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar taka undir bókunina. Foreldraráð grunnskólabarna fagnar tillögum úr bæjarstjórn um að efla starf Brúarinnar með fjölgun stöðugilda ásamt ráðningu í starf forvarnarfulltrúa. Það er ljóst að á tímum sem þessum hefur aldrei verið meiri þörf á stuðningi við börnin okkar. Vandamál hverfa ekki í heimsfaraldri heldur hafa rannsóknir sýnt okkur að þau aukast frekar og mikilvægt að bregðast við því. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga langtíma áhrif faraldurs eins og nú geisar og setja þeim viðbótarúrræðum sem farið verður í ekki of þröngan tímaramma. Kristín Blöndal Ragnarsdóttir, sign
Tillaga 1 frá fulltrúa Viðreisnar. Bæta við stöðugildi sálfræðings á fræðslusviði/Brúin. Tillagan er felld með þremur atkvæðum frá fulltrúm Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra, fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar samþykkja tillöguna.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir leggja fram eftirfarandi bókun; Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir vekja athygli á því að sálfræðingar skólaþjónustu sinna greiningu, námskeiðum og ráðgjöf en það er á ábyrgð ríkisins að sinna meðferð eins og getið er til um í minnisblaði mennta- og lýðheilsusviðs. Í dag eru 756 börn á hvert stöðugildi sálfræðinga í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar en árið 2017 voru um 1100 börn, um 2018 800 börn. Mennta og lýðheilsusvið og fjölskyldu- og barnamálasvið hafa að undanförnu þróað vinnulag og verkferla Brúarinnar sem tengir saman úrræði, ráðgjafa, og sérfræðinga innan og utan skólanna á sviðunum og er sú innleiðing og þróun enn í gangi. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir leggja áherslu á að á meðan það þróunarstarf er í gangi sé ekki rétt að fjölga sálfræðingum enda segir í minnisblaði að sálfræðingar séu ekki einir og sér endilega lausn þeirra vandamála sem koma upp í skólum. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir leggja því til að skoðað verði með hvaða hætti best er að koma til móts við áskoranir í skólakerfinu þegar komin er enn frekari reynsla á vinnu Brúarinnar og að bætt verði við ef á þarf í samvinnu við stjórnendur skólanna og þá sem stýra Brúarvinnunni þegar þar að kemur og geta því ekki tekið undir tillögu Viðreisnar.
Viðreisn óskar bókað og fulltrúi Samfylkingar tekur undir. Mikilvægt er að auka sálfræði þjónustu fyrir börn í skólum Hafnarfjarðar. Lengi hefur verið mikil þörf á sálfræðiþjónustu í skólum, sérstaklega núna á tímum covid. Biðlistar eru langir og oft mikið álag á þá starfsmenn sem reyna mæta börnu og ungmönnum sveitafélagsins. Sýnt hefur verið aukin vanlíðan, meiri þörf á stuðning og aðstoð. Þetta er ekki mikill viðbótakostnaður og mikilvæg fyrir okkur að vera tilbúin að fjárfestra í framtíðinni með því að geta mætt börnunum þegar þau þurfa stuðninginn ekki eftir margar vikur eða mánuði.
Fulltrúi Samfylkingar leggur fram eftirfarandi bókun; Fulltrúi Samfylkingar þakkar samantektina og matið á tillögunum. Við teljum mikilvægt að þrátt fyrir að nauðsynlegt sé að spara í árferði sem þessu þá megi ekki spara í þjónustu við börnin okkar og mikilvægt er að nú þegar sér fram á að mögulega fari að stefna í að lífið fari í eðlilegra horf þá verðum við að setja kraft og fjármuni í að huga að líðan barnanna okkar og mæta þeim sem á einhvern hátt hafa farið illa út úr aðstæðunum í samfélaginu.
Tímabundin leikskólastjóraskipti á Víðivöllum.
Lagt fram.
Lögð fram tillaga forstöðumanns sundstaða um aukna opnun sundstaða yfir jólahátíðina.
Fræðsluráð samþykkir tillögu forstöðumanns sundstaða um aukinn opnunartíma í sundlaugum Hafnarfjarðar. Fræðsluráð þakkar starfsfólki sundlauganna og íþrótta og tómstundafulltrúa fyrir frumkvæðið og skjót vinnubrögð.