Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Lars Imsland, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Særún Þorláksdóttir, varaáheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Sólveig Reynisdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Margrét Thelma Líndal áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Lögð fram skipan bæjarstjórnar frá 8. júní sl. í fræðsluráð.
Lagt fram.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 8.júní sl. eftirfarandi tillögu til fræðsluráðs: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hafinn verði undirbúningur að endurskipulagningu leikskóladagsins með það að leiðarljósi að þróa leikskólastarf enn frekar að nútímakröfum starfsfólks og barna. Tillögunni er vísað til útfærslu í fræðsluráði.
Fræðsluráð samþykkir að hefja undirbúning að endurskipulagningu leikskóladagsins með það að leiðarljósi að þróa leikskólastarf í Hafnarfirði enn frekar. Miklar breytingar á starfsumhverfi kennara í leikskólum samhliða lífskjarasamningum og breytingar í starfsumhverfi leikskóla kalla á að skoða leiðir til að þróa leikskólastarf til að takast á við þessar breytingar í starfsumhverfi og nútíma samfélagi leikskólastarfi öllu til framdráttar. Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að undirbúa erindisbréf og tillögur að vinnulagi, tímalínu og samantekt á þeim starfsmönnum og öðrum þeim sem lagt verður til að, að vinnunni koma.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 8. júní sl. eftirfarandi tillögu til fræðsluráðs: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að frístundastyrkur verði teknir upp við þriggja ára aldur á kjörtímabilinu. Áhersla er á lægri gjöld í þjónustu til barna enda er það brýnt hagsmunamál barnafjölskyldna í bænum. Tillögunni er vísað til útfærslu í fræðsluráði.
Fræðsluráð samþykkir að vísa tillögu um frístundastyrk yngri barna til vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
Fulltrúi Viðreisnar lagði fram eftirfarandi bókun: Viðreisn fagnar því að verið sé að færa út notkun á frístundastyrkjum til barna og ungmenna, svo yngri börn sem iðka tómstundir geti notið styrksins. Meirihluti leggur til að byrja á fimm ára, Viðreisn samþykkir það en óskar eftir því að samhliða þessari vinnu verði sett inn í fjárhagáætlunarvinnu, kostnaðarmat á að færa styrkinn niður í 3ja ára aldur. Einnig verði endurskoðun á frístundastyrknum. Í dag er frístundastyrkurinn talinn í mánuðum eða hver iðkandi fær mánaðargreiðslu, þar sem hvert barn fær um 4.500 kr. á mánuði. Við í Viðreisn teljum það kerfi flókið og ógagnsætt og viljum líta til nágrannasveitarfélaga okkar. Þar er öllum börnum úthlutað jafnmiklu fjármagni, burt séð frá því hvort þau æfi tómstund sem er aðeins 10 mánuði á ári eða 12 mánuði á ári. Einnig býður sú leið upp á að hægt sé að ráðstafa styrknum í eina eða fleiri greinar. Núverandi fyrirkomulag mismunar börnum sem ekki eru í tómstundum alla mánuði ársins. Eins teljum við mikilvægt að minnka flækjustig fyrir foreldra/forráðafólk eins og hægt er, með því að hafa eina fasta greiðslu sem hægt er að ráðstafað að vild í tómstundir barnanna og ungmenna. Eins gæti sumarfrístundakerfið farið undir þessa einnar krónustyrk. Sumarfrístundarstyrkjakerfið eins og það er í dag er ógagnsætt, það er enginn leið fyrir foreldra/forráðafólk að flétta upp stöðunni á styrknum í dag og vita því fáir hvað barnið þeirra „á inni“ af styrkjum. Einna krónutölu kerfi er einfaldara og gagnsærra fyrir alla. Flest öll sveitafélög á Íslandi styðjast við eina krónutölu sem foreldrar/forráðafólk ráðstafa, einföldum kerfið.
Bæjarstjórn vísaði á fundi sínum 8.júní sl. eftirfarandi tillögu til fræðsluráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hefja undirbúning að stækkun Tónlistarskóla Hafnarfjarðar; greindir verðir möguleikar til viðbyggingar við núverandi húsnæði og gerð áætlun um framkvæmdir og kostnað. Tillögunni er vísað til úrvinnslu í fræðsluráði og umhverfis- og framkvæmdaráði.
Fræðsluráð samþykkir að fela sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs í samvinnu við umhverfis- og skipulagssvið að vinna áfram að tillögum með skólastjóra tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Lagt fram minnisblað þróunarfulltrúa grunnskóla dags. 30. maí 2022 um gjaldfrjálsan grunnskóla ókeypis skólagögn.
Til kynningar.
Lagt fram minnisblað aðstoðarmanns sviðsstjóra um fjölgun leikskólaplássa við Hraunvallaskóla þar sem óskað er eftir viðauka fjárhagsáætlun.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi minnisblað um fjölgun leikskólarýma í Hraunvallaskóla og vísar framkvæmd til umhverfis- og skipulagssviðs til framkvæmda, jafnframt er viðauka vísað til samþykktar í bæjarráði.
Lagt fram minnisblað aðstoðarmanns sviðsstjóra um lausar kennslustofur.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi minnisblað vegna kaupa á færanlegum skólastofum við Vesturkot og Hamravelli og vísar framkvæmd til umhverfis- og skipulagssviðs til framkvæmda, jafnframt er viðauka vísað til samþykktar í bæjarráði.
Skólalóðir, leik- og grunnskóla.
Fræðsluráð óskar eftir því að umhverfis- og skipulagssvið taki saman minnisblað með greiningu um stöðu skólalóða leik- og grunnskóla í Hafnarfirði þar sem greind verður staða hvers skóla fyrir sig. Óskað er eftir því að í framhaldi verði gerð langtíma og framkvæmdaáætlun um endurbætur á leik- og grunnskóla lóðum bæjarins þar sem kostnaður verður greindur fyrir hvern skóla fyrir sig. Mikilvægt er að áætlunin sé skýr og gagnsæ, svo notendur, bæjarbúar og allir viti hvernig verði farið í þessi mál og hvað verði gert.
Lagt fram minnisblað.
Fræðsluráð felur mennta- og lýðheilsusviði að hefja vinnu við undirbúning á nýrri deild fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd á grunnskólaaldri með aðsetur í Hafnarfirði, sambærilegt úrræði og Bjarg sem staðsett er við Hvaleyrarskóla, að því gefnum að fjármagn sé tryggt frá ríki. Mikilvægt er að börnin fái menntun í samræmi við alþjóðleg lög og samþykkt ríkis um barnasáttmála sameinuðuþjóðanna.
Lagt fram erindi Íþróttabandalags Hafnarfjarðar og Hauka um að hefja íþróttaæfingar í íþróttahúsi Skarðshlíðarskóla næsta haust fyrir yngstu aldurshópa.
Fræðsluráð samþykkir að úthluta íþróttahreyfingunni tímum til æfinga frá og með hausti 2022 í íþróttahúsi Skarðshlíðarskóla.
Lögð fram fundargerð 352. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.