Hafnarstjórn

22. apríl 2014 kl. 12:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1449

Mætt til fundar

  • Lúðvík Geirsson formaður
  • Elín Soffía Harðardóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Helga R Stefánsdóttir aðalmaður
  • Örn Tryggvi Johnsen varamaður

Ritari

  • Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
  1. Almenn erindi

    • 1208466 – Viðlegugjöld flotkvía, viðræður

      Lagt fram bréf frá Vélsmiðju Orms og Víglundar, þar sem óskað er viðræðna við Hafnarfjarðarhöfn.

      Hafnarstjóra falið að afla frekari upplýsinga um málefnið.

    • 1310316 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2014

      Hafnarstjóri rakti efnisatriði samningaviðræðna við Rio-Tinto, Alcan um fyrirkomulag vörugjalda fyrir aðföng og afurðir álversins frá og með 1. október 2014

    • 1404302 – Umsókn um lóð

      Lögð fram umsókn Geneón Europe um lóðina Óseyrarbraut 24.

      Hafnarstjóra er falið að ræða nánar við umsækjanda og afla frekari upplýsinga um málið.

    • 1112128 – Umhverfisstefna Hafnarfjarðarhafnar

      Farið yfir umgengni á hafnarsvæðinu og á lóðum á hafnarsvæðinu.

      Hafnarstjóra falið að ræða við byggingafulltrúa, heilbrigðisfulltrúa og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um úrbætur, þar sem þeirra er þörf.$line$Ennfremur er hafnarstjóra falið að auglýsa tiltekt á hafnarsvæðinu og fylgja henni eftir með tiltækum ráðum.

Ábendingagátt