Hafnarstjórn

29. apríl 2014 kl. 12:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1450

Mætt til fundar

  • Lúðvík Geirsson formaður
  • Elín Soffía Harðardóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Helga R Stefánsdóttir aðalmaður
  • Örn Tryggvi Johnsen varamaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri sat fundinn.

Ritari

  • Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri sat fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1209178 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2013

      Lagður fram Ársreikningur Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2013

      Hafnarstjórn gerir athugasemd við að ársreikningurinn hafi ekki verið sendur til formlegrar afgreiðslu í hafnarstjórn áður en hann var tekinn fyrir í bæjarstjórn, eins og venja hefur verið.$line$Hafnarstjórn óskar eftir því að þetta verði fært til fyrri vegar.$line$$line$Hafnarstjórn hefur yfirfarið ársreikning hafnarinnar fyrir árið 2013 og samþykkir hann.

    • 0805038 – Hafnar- og lóðarsamningur, endurskoðun

      Lagður fram samningur milli Hafnarfjarðarhafnar og Rio-tinto, Alcan um vörugjöld og fleira frá og með 1. október 2014. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki hafnarstjórnar Hafnarfjarðar og bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.

      Hafnarstjórn þakkar samninganefnd hafnarinnar í samningum við Rio-Tinto, Alcan og samningsaðilum góða sátt í viðræðunum.$line$Hafnarstjórn samþykkir samninginn og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hann.$line$

    • 1404302 – Umsókn um lóð

      Lögð fram minnisatriði hafnarstjóra með forsvarsmönnum Geneón Evrópu ehf. varðandi umsókn þeirra um lóð á hafnarsvæðinu.

      Hafnarstjórn getur ekki orðið við erindinu, að svo stöddu, þar sem annar aðili er lóðarhafi.

    • 1402300 – Hótel- og ferðaþjónusta í Hafnarfjarðarhöfn

      Lagðar fram teikningar af mögulegum staðsetningum og mögulegu fyrirkomulagi, ásamt kostnaðaráætlun vegna aðstöðusköpunar fyrir hótelskip í Hafnarfjarðarhöfn.

      Hafnarstjóra falið vinna málið áfram og kostnaðarmat út frá framlagðri hugmynd.

Ábendingagátt