Íþrótta- og tómstundanefnd

3. maí 2022 kl. 14:00

í Lóninu Linnetsstíg 3

Fundur 351

Mætt til fundar

  • Tinna Hallbergsdóttir varaformaður
  • Steinn Jóhannsson aðalmaður
  • Einar Gauti Jóhannsson varamaður

Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi og Elísabet Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍBH sátu fundinn.

Ritari

  • Tinna Dahl Christiansen

Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi og Elísabet Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍBH sátu fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 2204446 – Tímaúthlutun fyrir íþrótta- og sundkennslu 2022-2023

      Tímaúthlutun til skóla vegna sund- og íþróttakennslu skólaárið 2022 og 2023 lagt fram.

      Samþykkt.

    • 2204448 – Tímaúthlutun í íþróttamannvirkjum Hafnarfjarðarbæjar fyrir Íþróttabandalag Hafnarfjarðar fyrir næsta vetur lögð fram.

      Tillaga að tímaúthlutun fyrir Íþróttabandalag Hafnarfjarðar fyrir næsta vetur 2022-2023 lögð fram til samþykktar.

      Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir tímaúthlutun til ÍBH en beinir því jafnframt til fræðsluráðs að kanna hvort svigrúm sé til að opna á tímaúthlutun til ÍBH í Skarðshlíðarskóla til þess að mæta aukinni virkni hjá íþróttafélögum.

    • 2201616 – Sumarstörf Hafnarfjarðar 2022

      Farið yfir fjölda umsókna í Vinnuskólanum fyrir 18 ára og eldri, lagt fram til kynningar.

    • 2105119 – Hafnfirsk æska, kynningar á sumarstarfi í Hafnarfirði

      Kynningarblað um sumarstarf fyrir börn í Hafnarfirði.

      Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við mennta- og lýðheilsusvið að þessi leið verði nýtt til að auglýsa frístundastarf á vegum bæjarins og að sérstaklega verði auglýstar breytingar á fyrirkomulagi frístundastyrks varðandi sumartímann.

    • 2204280 – Ungt fólk 2022, áskoranir og tækifæri

      Helstu niðurstöður kynntar.

      Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar kynninguna og lýsir yfir áhyggjum af andlegri líðan ungmenna.

    • 2101580 – Forvarnaverkefni, Build, samstarfsverkefni með Pietasamtökunum

      Helstu niðurstöður kynntar.

      Erindi frestað.

    • 2110280 – Íþróttafélagið Ösp, styrkbeiðni

      Lagt fram erindi frá Íþróttafélaginu Ösp.

      Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir styrk að fjárhæð 30.000 kr. fyrir hvern hafnfirskan iðkanda í þessu verkefni.

    Fundargerðir

    • 2201495 – ÍBH, fundargerðir 2022-2023

      Nýjasta fundargerð ÍBH lögð fram.

    • 1509776 – Ungmennaráð, fundargerð

      Nýjasta fundargerð ungmennaráðs Hafnarfjarðar lögð fram.

      Erindi frestað.

Ábendingagátt