Menningar- og ferðamálanefnd

21. maí 2013 kl. 08:30

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 203

Mætt til fundar

  • Dagbjört Gunnarsdóttir formaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður
  • Hlíf Ingibjörnsdóttir aðalmaður

Ritari

  • Ásbjörg Una Björnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1304347 – Straumur 2013

      Farið yfir umsóknir.

      Menningar- og ferðamálanefnd leggur til að gengið verði til viðræðna við Ólöfu Erlu Bjarnadóttur, Sigurlínu Margréti Osuala og Hildi Ýr Jónsdóttur um rekstur listiðnaðar- og hönnunarmiðstöðvar í Straumi.$line$Menningar- og ferðamálanefnd vísar þessari tillögu til Bæjarráðs.

    • 1305170 – Áætlun ferðamála 2013

      Ásbjörg Una Björnsdóttir kynnir áætlun sumarsins 2013 fyrir nefndinni.

      Menningar- og ferðamálanefnd lýsir yfir ánægju með hversu vel hefur gengið að fylgja markmiðum Ferðamálastefnu Hafnarfjarðarbæjar og að mörg verkefni stefnunnar séu komin í framkvæmdarferli.

Ábendingagátt