Menningar- og ferðamálanefnd

20. janúar 2014 kl. 13:00

Sjá fundargerðarbók

Fundur 214

Mætt til fundar

  • Dagbjört Gunnarsdóttir formaður
  • Hlíf Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður

Ritari

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1308268 – Krýsuvík - Seltún, deiliskipulag

      Lögð fram greinargerð með deiliskipulagi fyrir Seltún í Krýsuvík. Óskað er eftir athugasemdum nefndar.

      Farið yfir greinargerðina og kynningarefni henni tengdri. Nefndin felur menningar- og ferðamálafulltrúa að koma athugasemdum sem ræddar voru á fundinum á framfæri.

    • 1204331 – Reykjanesfólkvangur, fundargerðir

      Lögð fram skýrsla landavarðar fyrir árið 2013 og fundargerð stjórnar.

      Nefndin felur menningar- og ferðamálafulltrúa að koma sem fyrst á fundi með stjórn Reykjanesfólkvangs til þess að fara yfir deiliskipulag, endurnýjun samnings og fl.

    • 1309255 – Jólaþorpið 2013

      Menningar- og ferðamálafulltrúi fór yfir verkefnið og lagði fram rekstraryfirlit. Jafnframt greint frá því að haldinn verður fundur með kaupmönnum miðbæjarins og þeim sem komu að Jólaþorpinu 22.janúar nk. kl. 09 í Bókasafni Hafnarfjarðar.

      Farið yfir helstu kostnaðarliði Þorpsins og málin rædd.

    • 1009320 – Gaflaraleikhúsið

      Samningur við leikhúsið er runnin út en samið hefur verið um að leikfélagið fái lokið leikári sínu að Strandgötu 50 sem bærinn leigir.

      Rætt um næstu skref og menningar- og ferðamálafulltrúa falið að fara yfir stöðu mála með leikfélaginu.

    • 1401629 – Starfsáætlun í menningar- og ferðamálum 2014.

      Lögð fram starfsáætlun og hún kynnt.

      Rætt um áætlunina og sérstaklega viðburði.

    • 1401628 – Menningarstyrkir 2014

      Lögð fram drög að auglýsingu og rætt um styrkveitingar ársins 2014.

      Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að auglýsa eftir styrkumsóknum.

    • 1311385 – Gallerí 002, menningarmálanefnd boðið í heimsókn.

      Ákveða þarf hvenær nefndin getur skoðað Gallerí 002.

      Frestað til næsta fundar.

    • 1309249 – Hugmyndir frá Menningarfélagi Hafnarfjarðar.

      Lagt fram erindi frá hópi sem kallar sig Menningarfélag Hafnarfjarðar þar sem óskað er eftir að koma að viðburðum og því að gæða Hafnarfjörð lífi og listum.

      Nefndin fagnar áhuga félagsins á að efla menningu og listir í Hafnarfirði.

Ábendingagátt