Menningar- og ferðamálanefnd

29. október 2014 kl. 10:00

Sjá fundargerðarbók

Fundur 232

Mætt til fundar

  • Unnur Lára Bryde aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður

Ritari

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1410151 – Starfsáætlun menningar- og ferðamála 2015

      Lögð fyrir að öðru sinni drög að starfsáætlun.

      Áætlunin verður skoðuð aftur eftir að fjárhagsáætlun liggur fyrir eða í byrjun árs 2015.

    • 0704069 – Menningarstefna Hafnarfjarðarbæjar. Endurskoðun stefnu.

      Nefndin gerir það að tillögu sinni til bæjarráðs að endurskoðun á menningarstefnu Hafnarfjarðarbæjar verði lokið á árinu 2015. Rætt um aðferðafræði og fyrstu skref.

    • 1401656 – Sveinssafn, framtíð og samstarfssamningur

      Lagt fyrir erindi frá Sveinssafni til kynningar fyrir nýja nefnd. Erindið var áður á dagskrá í upphafi þessa árs.

      Menningar- og ferðamálanefnd hefur kynnt sér erindið en bendir á að ekki stendur til að enduvekja menningarsamninga.

    • 1410573 – Heimsókn menningar-og ferðamálanefndar í Hafnarborg.

      Ólöf K. Sigurðarsdóttir forstöðumaður Hafnarborgar tók á móti nefndinni og fór yfir helstu verkefni og áherslur.

Ábendingagátt