Menningar- og ferðamálanefnd

17. febrúar 2015 kl. 11:00

í Langeyri, Strandgötu 8

Fundur 240

Mætt til fundar

  • Unnur Lára Bryde aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður

Ritari

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1502304 – Hönnun í Hafnarfirði 12.-15. mars

      Hafnarborg, Íshús Hafnarfjarðar og Litla hönnunarbúðin taka þátt í Hönnunarmars. Hafnarfjarðarbær mun að því tilefni verða með sérstaka áherslu á hönnun 12.-15. mars.

      Nefndin styður það heilshugar að vakin sé athygli á flottri hönnun í Hafnarfirði.

    • 1502068 – Viðburðir 2015

      Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram um skiptingu fjármagns og fleira.

      Rætt um að spenna bogann eins og strengur þolir í viðburðum 2015. Skemmtilegri Hafnarfjörður.

    • 1502309 – Bókasafn Hafnarfjarðar. Lekavandamál.

      Greint frá endurteknum leka sem kemur að utan, frá Reykjavíkurvegi.

      Nefndin hvetur Fasteignafélagið til þess að kanna málið hið fyrsta.

    • 1502313 – Skemmtilegar merkingar.

      Lögð fram drög að bréfi nefndar til umhverfis og framkvæmdaráðs um skemmtilgar merkingar þar sem unnið verður með Hafnarfjarðarbrandara m.a.

      Nefndin samþykkir bréfið fyrir sitt leyti. Nefndin leggur mikið uppúr húmor, glensi, jákvæðni og skemmtilegheitum og vonast til að umhverfis- og framkvæmdaráð deili þeirri skoðun. Óskað er eftir kostnaðarmati, tíma- og framkvæmdaáætlun.

Ábendingagátt