Skipulags- og byggingarráð

14. janúar 2014 kl. 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 337

Mætt til fundar

  • Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
  • Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður

Ritari

  • Bjarki Jóhannesson sviðstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 18.12.13 og 08.01.14. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.

      Lagt fram.

    • 1006284 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar heildarendurskoðun.

      Lögð fram uppfærð aðalskipulagsgreinargerð fyrir þéttbýli og uppland, þar sem brugðist hefur verið við innkomnum umsögnum. Lagður fram uppfærður skipulagsuppdráttur fyrir þéttbýli og uppland. Lögð fram uppfærð samantekt umsagna og tillaga að svörum við þeim. Lögð fram uppfærð aðalskipulagsgreinargerð og aðalskipulagsuppdráttur fyrir Krýsuvíkurhluta. Lögð fram umhverfisskýrsla fyrir breytingar frá AH 2005-2025. Yngvi Þór Loftsson og Margrét Ólafsdóttir fulltrúar Landmótunar og Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Árni Geirsson fulltrúar Alta mættu á fundinn.

      Skipulags- og byggingarráð þakkar fulltrúum Landmótunar og Alta fyrir kynningarnar. Skipulags- og byggingarráð samþykkir svör við innkomnum umsögnum og gerir þau að sínum.Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ljúka við gerð skipulagstillögunnar og umhverfisskýrslu og frestar endanlegri afgreiðslu þeirra til aukafundar, sem haldinn verður þriðjudaginn 21. janúar.$line$Samþykkt að draga úr hraða fólksfjölgunar og miða við að ná betra samræmi við nýja mannfjöldaspá fyrir höfuðborgarsvæðið allt og þau markmið sem verið er að vinna með í vinnu við nýtt svæðisskipulag. Til þess að ná því markmiði þarf að draga úr uppbyggingarhraða í þveim hverfum sem áfram verða á áætlun en einnig að fella niður byggðaflekann Hamranes fyrir íbúðarsvæði en áfram verði gert ráð fyrir að á því svæði verði möguleiki á verslun og þjonustu fyrir innri byggð á Völlum og Ásland 5 og 6. Þetta mun hafa jákvæð áhrif á umhverfismat þar sem enn minna nýtt hraun er tekið undir byggð á skipulagstímabilinu. Reikna má þó með að þau svæði sem nú hafa verið lögð niður í tillögu að nýju aðalskipulagi komi til álita við næstu endurskoðun.$line$Þá er nauðsynlegt að setja inn þéttingatölu í töflur skýrslunni sem ættu að gefa góða yfirsýn yfir eðli og umfang byggðarinnar í öllum hverfum bæjarins.

    • 1305167 – Austurgata, Reykjavíkurvegur, Hverfisgata deiliskipulag.

      Tekið til umræðu deiliskipulag reits sem afmarkast af Austurgötu, Reykjavíkurvegi, Álfaskeiði, lóðamörkum húsa austan Hverfisgötu og Læknum. Að hluta til nýtt skipulag og að hluta til endurskoðun deiliskipulags Miðbæjar 1981. Deiliskipulag Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund verði fellt inn í deiliskipulagið. Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu og húsaskráning (vinnuskjal).

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagslýsinguna með áorðnum breytingum, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Nafni svæðisins verði breytt í Miðbær-Hraun austur. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagsslýsingu fyrir Miðbæ-Hraun dags. 07.11.14, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”

    • 1210498 – Suðurbær nýtt deiliskipulag.

      Skipulags- og byggingarsvið kynnir stöðu skipulagsvinnunnar og íbúafund um skipulagstillöguna.

      Frestað.

    • 1311187 – Strandgata 28, deiliskipulag Miðbæjar

      Lögð fram endurskoðuð tillaga KRARK arkitekta að deiliskipulagi lóðanna þar sem komið hefur verið til móts við ábendingar skipulags- og byggingarráðs. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 18.12.13, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

      Festað.

Ábendingagátt