Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Fundinn sátu einnig Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir, Gunnþóra Guðmundsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Tekið fyrir að nýju fyrirspurn Taper ehf um uppbyggingu á lóðinni. Lögð fram ný gögn frá Batteríinu arkitektum ehf. dags 03.03.2017 ásamt bréfi Tækniskólans dags. 29.05.2017 varðandi uppbyggingaráform á ofangreindri lóð..
Lagt fram.
Lagt fram erindi Köfunarþjónustunar frá 02.06.2017 um lóðarúthlutun ásamt samþykki Hafnarstjórnar frá 07.06.2017 varðandi lóðarúthlutun og deiliskipulagsbreytingu. Jafnframt lagður fram uppdráttur ALARK dags. 25.05.2017 að breyttu deiliskipulagi.
Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað og samþykktir að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr, 43. gr. 123/2010.
Kynntar vinnslutillögur VSÓ og Mannvits vegna fyrirhugaðrar legu Borgarlínu um Reykjavíkurveg.
Lagðar fram á ný hugmyndir VA arkitekta ásamt markmiðlýsingu að deiliskipulagi svæðisins.
Tekin fyrir ný tillaga að deiliskipulagi lóðarinnar Hamarsbraut 5 dags. 30.05.2017. Jafnframt lagt fram bréf lóðarhafa með ósk um rökstuðning fyrir synjun ráðsins á fundi þess þann 19.05. s.l.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða umsögn skipulagsfulltrúa sem gerir grein fyrir synjun ráðsins þann 19.05. s.l. Jafnframt samþykkir ráðið að grenndarkynna tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð.
Lögð fram umsókn Önnu G. Pétursdóttur, Austurgötu 36. þar sem hún fer fram á heimild til að láta vinna breytt deiliskipulag fyrir lóðina. Lóðarhafi hefur í hyggju að reisa stærra hús en núverandi heimild er fyrir í gildandi deiliskipulagi. Jafnframt lögð fram minnisblöð Verksýnar dags. 02.05.2017 og ódags minnisblað bæjarins.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn Minjastofnunnar þar sem húsið fellur undir lög um menningarminjar nr 80/2012.
Svanþór Eyþórsson sækir 31.1.2017 um lóðarstækkun sem nemur helmingi af óskiptu landi milli lóðanna Vitastígs 12 Vitastíg og Álfaskeiðs 36. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa.
Synjað með vísan til umsagnar Skipulagsfulltrúa.
Nesnúpur ehf leggur inn fyrirspurn varðandi breytingar á byggingarmagni og byggignarreit. Jafnframt lögð fram gögn Orra Árnassonar dags 09.06.2017.
Erindinu er vísað til skipulagsfulltrúa til umsagnar.
Helgi Hafliðason arkitekt f.h.Fríkirkjusafnaðarins leggur inn fyrirspurn dags. 7. júní 2017 ásamt uppdráttum og tillögu að breyttu um mögulega stækkun safnaðarheimilisins.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir nánari gögnum og umsögn Minjastofnunnar þar sem húsið fellur undir lög um menningarminjar nr. 80/2012.
Tillagan var auglýst frá 06.04.2017-18.05.2007. Lagðar fram athugasemdir sem bárust. Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt á umhverfis- og skipulagsþjónustu mættir á fundinn vegna þessa máls.
Kaldárbotnar og Gjárnar eru ómetanlegar perlur Hafnarfjarðar sem ber að vernda. Skipulags- og byggingarráð fellst ekki á að frístundabyggð eða lóðir undir frístundahús verði samþykkt innan svæðisins og felur Umhverfis- og skipulagsþjónustu að sjá til þess að rusl og leifar af sumarhúsi verði fjarlægt sem allra fyrst. Jafnframt felur ráðið Umhverfis-og skipulagsþjónustu að taka saman svör við athugasemdum.
Teknar til umræðu á ný hugmyndir um frágang hafnarbakkans og nágrennis.
Lögð fram fundargerð nr. 844
Lögð fram fundargerð.
Lögð fram fundargerð