Skipulags- og byggingarráð

13. ágúst 2019 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 681

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Jón Garðar Snædal Jónsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Einar Pétur Heiðarsson varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögfræðingur á stjórnsýslusviði.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögfræðingur á stjórnsýslusviði.

  1. Almenn erindi

    • 1903295 – Stórhöfði, göngustígur, ábending íbúa

      Áskorun íbúa, Páls Línbergs lögð fram. Skorað er á Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar með tölvupósti 11.3.2019 að skipta um skoðun og leggja ekki nýjan reiðstíg yfir núverandi stígakerfi. Bent er á að nóg pláss er á svæðinu fyrir alla.
      Opið bréf, áskorun, barst 3.7.2019. “Ég skora á bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar að breyta ekki núverandi Stórhöfðastíg og öðrum hluta stígarins í kringum Stórhöfða, í þriggja metra breiða reiðveg og halda áfram að nota hann einungis í þágu göngu-, hlaupa- og hjólafólks. Og jafnframt að stöðva för fámenna hestamanna nú þegar um sjálfan Stórhöfðastíg og beina þeim frekar á þar til gerða hestavegi, ekki á almennan göngustíg, eins og nú er gert.”

      Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að taka saman umsögn varðandi erindið.

    • 1906399 – Austurgata 36, byggingarleyfi

      Umsókn Ingvars Ara Arasonar dags. 26.6.2019 um byggingu einbýlishúss samkvæmt teikningum Gunnlaugs Ó. Johnson dags. 13.06.2019 var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá Afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 3.7.2019.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið í samræmi við ákvæði gildandi deiliskipulags.

    • 1904066 – Kirkjuvegur 13, fyrirspurn, smáhýsi á lóð

      Fyrirspurn Bjargar F. Elíasdóttur um byggingu skúrs á lóð vísað til skipulags- og byggingarráðs frá 578 Afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa.

      Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    • 1907309 – Friðlýsing svæðis, Brennisteinsfjöll, beiðni um athugasemdir

      Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar til kynningar barst 26.7.2019. Um er að ræða svæði 1. Háhitasvæði Brennisteinsfjalla: 68 Brennisteinsfjöll. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30.10.2019.

      Skipulags- og byggingarráð óskar eftir að mörk friðlýsingarsvæðisins verði skoðuð gaumgæfilega m.t.t. framtíðarnotkunar og aðgengis að svæðinu er varðar m.a. vatnsból bæjarins og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að taka saman umsögn.

    • 1610397 – Hjallabraut, aðalskipulagsbreyting

      Á fundi bæjarstjórnar þann 28.11.2018 var samþykkt að vinna að aðalskipulagsbreytingu vegna breyttrar landnotkunar við Hjallabraut í samræmi við 1.mgr. 36.gr. skipulagslaga. Lýsing vegna breytinganna hefur þegar verið samþykkt. Umsagnir þar til bærra aðila liggja nú fyrir. Einnig hefur verið haldinn íbúafundur þar sem breytingarnar voru kynntar.
      Nú er lagður fram uppdráttur er sýnir tillögu að aðalskipulagsbreytingunni.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagðan uppdrátt og að hann skuli auglýstur í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 1908058 – Hjallabraut, deiliskipulagsbreyting

      Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu við Hjallabraut. Í breytingunni felst að heimilt verði að reisa lágreista íbúðabyggð við Hjallabraut. Óskað er eftir heimild til að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna samhliða aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi er nær til svæðis við Hjallabraut og að hún verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni er nær til breyttrar landnotkunar á svæðinu sbr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar erindinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 0809375 – Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi

      Lögð fram tillaga ASK arkitekta vegna breytinga á deiliskipulagi við Ásvelli.

      Lagt fram til kynningar.

    Fyrirspurnir

    • 1906330 – Álfhella 10, breyting á deiliskipulagi

      Umsókn Hagtaks hf. frá 20.06.2019 um deiliskipulagsbreytingu að Álfhellu 10 var vísað til afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs af afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 17.7.2019.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn.

    • 1907295 – Brúsastaðir 2, fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa

      María Krista Hreiðarsdóttir og Börkur Jónsson leggja fram þann 25.07.2019 fyrirspurn varðandi mögulega breytingu á deiliskipulagi er nær til lóðarinnar við Brúsastaði 2.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.

    • 1906042 – Hraunskarð 2, fyrirspurn

      Fyrirspurn dags. 3.6. sl. frá Hraunskarð 2 ehf. þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 32 í 36 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir á að sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.

    • 1908018 – Hádegisskarð 3-15, fyrirspurn til skipulagsfulltrúa

      Snorri ehf. sækir um breytingu á innbyrðis lóðamörkum lóðanna og byggingu parhús í stað einbýlishúss við Hádegisskarð 11. Byggingarreitir innan lóðanna eru færðir til en ekki stækkaðir. Með erindinu fylgja teikningar er sýna fyrirhugaða uppbyggingu innan lóðanna.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir á að sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.

    Fundargerðir

Ábendingagátt