Skipulags- og byggingarráð

10. mars 2020 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 698

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Óli Örn Eiríksson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Sveinbergsson áheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.

  1. Almenn erindi

    • 1909291 – Lækjarhvammur 1, ósk um lóðarstækkun

      Umsókn Sigurbjörns Viðars Karlssonar og Svandísar Eddu Gunnarsdóttur um lóðarstækkun á lóðinni Lækjarhvammi 1 dags. 30.09.2019 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarráðs. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 17.12.2019 var samþykkt að grenndarkynna erindið og tillögu að breytingu á deiliskipulagi með vísan til 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Erindið var grenndarkynnt frá 21.01.-18.02.2020. Athugasemdir bárust. Samantekt skipulagsfulltrúa dags. 27.2.2020 vegna framkominna athugasemda lögð fram.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir lóðarstækkunina fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.

    • 0809375 – Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi

      Skipulags og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 10.9.2019 að auglýsa framlagða deiliskipulagstillögu í samræmi við 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykki afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs á fundi sínum þann 18.9.2019 með 9 greiddum atkvæðum. Tillagan var auglýst tímabilið 11.11.-23.12.2019. Ein athugasemd barst. Á fundi skipulags- og byggingarráðs dags. 14.1.2020 var skipulagsfulltrúa falið að taka saman greinargerð vegna framkominna athugasemda. Greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 06.03.2020 lögð fram.

      Greinagerð skipulagsfulltrúa gerir góða grein fyrir ferli deiliskipulagsins. Í greinagerðinni kemur fram að gott samráð hefur verið haft við íbúa um deiliskipulagstillöguna m.a. með íbúafundi. Einnig að leitað hafi verið umsagnar Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar og að brugðist hafi verið við ábendingum þeirra. Skipulags- og byggingarráð er sammála um að Ástjörnina og friðlandið við hana beri að vernda og bendir á að byggingarreitur knatthússins er allur innan lóðarmarka íþróttasvæðisins. Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

      Fulltrúi Viðreisnar í Skipulags og byggingarráði Hafnarfjarðar vill benda á að hluti samkomulags vegna uppbyggingar á svæði Hauka sem bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti virðist ekki vera í samræmi við lög. Í samkomulaginu er gefið upp að tekjur af gatnagerðagjöldum verði notaðar til þess að fjármagna íþróttahús Hauka. Nánar tiltekið segir í 4. grein samkomulagsins:
      4. Tekjur af innheimtum lóðaverðum (gatnagerðargjald byggingarréttargjald) vegna hinnar nýju íbúðabyggðar á Ásvöllum verði nýttar til uppbyggingar knatthúss á Ásvöllum.
      Í 10. gr. laga um gatnagerðargjald 153/2006 segir um ráðstöfun gatnagerðargjalds:
      „Sveitarstjórn skal verja gatnagerðargjaldi til gatnagerðar í sveitarfélaginu og til viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja.“
      Hafnarfjarðarbær hefur ekki lagaheimild til þess að skuldbinda sig í samningum til þess að ráðstafa gatnagerðargjaldi til annarra framkvæmda en gatnagerðar og viðhalds gatna.
      Er bæjarstjórn hvött til þess að afla lögfræðiálits um þennan hluta samkomulagsins við Hauka og ef ástæða reynist til, að uppfæra það sem fyrst til þess að tryggja að þetta verði ekki til þess að tefja verkefnið.

      Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- og óháðra bóka eftirfarandi:
      Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Knattspyrnufélagsins Hauka var á borði bæjarráðs þann 16. janúar 2020 og svo til endanlegrar staðfestingar í bæjarstjórn þann 22. janúar 2020. Hér á fundi skipulags- og byggingarráðs er til umræðu breyting á deiliskipulagi og svör skipulagsfulltrúa við þeirri athugasemd sem barst.

      Nú tekur fulltrúi Viðreisnar upp á því um tveimur mánuðum eftir að samkomulagið við Knattspyrnufélagið Hauka var staðfest í bæjarstjórn Hafnarfjarðar að bóka um það samkomulag milli aðila ? þrátt fyrir að það mál sé ekki hér á dagskrá fundarins. Það er með ólíkindum að Viðreisn skuli nú á þessum tímapunkti gera tilraun til að leggja stein í götu Hauka til að hefja uppbyggingu á íþróttasvæði sínu.

      Rétt er að ítreka að allt þetta ferli hefur verið í gangi í um tvö ár. Starfshópur hefur verið með málið á sínu borði og skilaði skýrslu sinni fyrir jól. Það var að frumkvæði Hauka ? og í samráði við bæjarfélagið – að hluta lóðar var skilað til bæjarins; á þeirri lóð stendur nú til að hefja kröftuga uppbyggingu um 100 íbúða og hefur það bæði farið í aðalskipulags- og deiliskipulagsferli. Slík uppbygging mun skila bæjarfélaginu tekjum, en rétt er að ítreka það að bæjarfélaginu er fullkunnugt um skyldur sínar þegar kemur að nauðsynlegum gatnagerðum á svæðinu.

      Fulltrúi Viðreisnar í Skipulags og byggingarráði hafnar þeim gífuryrðum sem hér hafa verið látin fljóta. Fulltrúar Viðreisnar í bæjarstjórn, bæjarráði og skipulags- og byggingarráði hafa stutt þetta verkefni í gegnum allt skipulagsferlið og munu gera það áfram.
      Fulltrúum meirihlutans er bent á að lesa aftur bókun Viðreisnar þar sem skýrt koma fram áhyggjur af því að vinnubrögð við samningagerð á sínum tíma gætu tafið uppbyggingarferlið sem er framundan. Ekkert í bókun meirihlutaflokkanna svarar þeim ábendingum.

    • 1909118 – Hlíðarbraut 10, þétting byggðar

      Skipulags- og byggingarráð samþykki á fundi sínum þann 11.02.2020 að unnið verði að deiliskipulagi sem byggir á tillögu A dags. 7.2.2020. Leitast verði við að bílastæðamál verði leyst innan lóðar og taki mið af stærð íbúða. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi sem byggir á tillögu A. Helstu breytingar eru að í stað þriggja lóða er gert ráð fyrir fimm lóðum og mörk lóða breytast án þess að heildarstærð svæðis breytist. Nýbyggingar verða fjórar, tvö einbýli og tvö tvíbýli. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir breytingu á gatnamótum Hlíðarbrautar og Hringbrautar vegna umferðaröryggis. Jafnframt er kynnt tillaga að breyttu aðalskipulagi reits S20.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögur að breyttu deiliskipulagi og aðalskipulagi og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar sbr. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga.

    • 2002210 – Mat á kolefnisspori á skipulagsstigi - fyrsta skref í átt að kolefnishlutleysi, skýrsla

      Lögð fram skýrsla Eflu verkfræðistofu fyrir Skipulagsstofnunum um Mat á kolefnisspori á skipulagsstigi sem gefin var út í janúar 2020. Skýrslan var lögð fram á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 26.2. sl. og var vísað til vinnu umhverfis- og auðlindastefnu og til skipulags- og byggingarráðs.

      Lagt fram.

    • 1907017 – Hafnarsvæði, Aðalskipulagsbreyting

      Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykki á fundi sínum þann 04.07.2019 afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs um að hafin verði vinna við aðalskipulagsbreytingu á hafnarsvæðinu. Fyrir liggur rammaskipulag Flensborgarhafnar og nágrennis samþykkt í bæjarstjórn 5. feb. s.l. Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa dags. 09.03.2020 um áframhaldandi vinnu.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við breytt aðalskipulag hafnarsvæðis og að tekin verði saman lýsing vegna fyrirhugaðrar aðalskipulagsbreytingar í samræmi við 30. og 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar Hafnarstjórnar.

    • 2003196 – Fornleifa- og húsaskráning, erindi

      Lagt fram erindi Minjastofnunar þar sem hvatt er til að hraða lögbundinni skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja á skipulagsreitnum Miðbær, Hraun vestur.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að lögbundinni skráningu fornleifa, húsa og mannvirkja.

    Fyrirspurnir

    • 1710154 – Hvaleyrarbraut 30, fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa

      Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Hagtaks hf. vegna byggingaráforma á lóðinni. Kynnt breytt tillaga ASK arkitekta að uppbyggingu Hvaleyrarbrautar 30.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og vísar til umsagnar Hafnarstjórnar.

    • 2001552 – Norðurhella 19, byggingarleyfi, fyrirspurn

      Fyrirspurn ESAIT ehf. dags. 27.1.2020 er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Fyrirspurnin snýr að byggingu gistiheimilis að Norðurhellu 19.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og bendir á að grenndarkynna þarf tillöguna þegar hún berst skv. 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga.

    Fundargerðir

    • 1901181 – Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir

      Lögð fram fundargerð 92. fundar SSK.

    • 2002021F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 787

      Lögð fram fundargerð 787. fundar.

    • 2002026F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 788

      Lögð fram fundargerð 788. fundar.

Ábendingagátt