Skipulags- og byggingarráð

1. júní 2021 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 736

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurjón Ingvason varaáheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

  1. Almenn erindi

    • 1903510 – Hellnahraun 3. áfangi, endurskoðun deiliskipulags

      Tekin til umræðu endurskoðun á vestari hluta deiliskipulags Hellnahrauns.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við deiliskipulag vestari hluta Hellnahrauns 3. áfanga.

    • 2009350 – Drangsskarð 2h, stálmastur

      Síminn hf. sækir 14.9.2020 um að setja upp stálmastur og farsímaloftnet við spennistöð samkvæmt teikningum Jóhanns Kristinssonar dagsettar 6.9.2020. Erindið var lagt fram á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 17.11.2020. Afgreiðsla þess var: “Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að finna heppilega staðsetningu.”
      Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags 14.5.2021.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að staðsetning c í umsögn verði lögð til grundvallar við nánari úrvinnslu.

    • 2105354 – Hvaleyrarholt suðaustur, endurskoðun deiliskipulags

      Skipulagshöfundar kynna frumdrög að endurskoðuðu deiliskipulagi.

      Lagt fram til kynningar.

    Fyrirspurnir

    • 2101532 – Skipulags- og byggingarráð, fyrirspurnir kjörinna fulltrúa

      Lögð fram svör við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingar frá 7.2.2021.

      Lagt fram.

    • 2103510 – Ljósaklif við Garðaveg, breyting lóðar

      Erindi vegna Ljósaklifs við Garðaveg var lagt fram á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 20.04.2021. Afgreiðsla þess var: “Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar skipulagsfulltrúa.”
      Nú er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.5.2021 vegna óska um að skipta framangreindri lóð í tvær ásamt uppbyggingu innan þeirra.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið, sjá umsögn skipulagsfulltrúa.

    • 2105208 – Strandgata 30, fyrirspurn

      Kynnt breytt tillaga að uppbyggingu Strandgötu 26-30.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið.

    • 2105279 – Stekkjarberg 11, fyrirspurn

      Þann 18.5. sl. leggja Hjalti og Hjörtur Brynjarssynir inn fyrirspurnarerindi vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Stekkjarbergs 11.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið með fyrirvara um byggingarmagn og áhrif á fólkvang.

    • 2105244 – Drangsskarð 2, fyrirspurn

      Smári Björnsson fh. Almannakórs ehf. leggur 17.5.2021 inn fyrirspurn er varðar breytingu á skipulagi Drangskarðs 2. Breytingin felst í breytingu á byggingarreit Drangsskarð 2 vegna byggingar þriggja íbúða á tveim hæðum.

      Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    • 2105262 – Bjargsskarð 1, fyrirspurn, deiliskipulag

      Smári Björnsson fh. Almannakórs ehf. leggur 17.5.2021 inn fyrirspurn er varðar breytingu á skipulagi Bjargsskarðs 1. Breytingin felst í breytingu á byggingarreit Bjargsskarðs 1 þar sem heimild væri til byggingar þriggja íbúða á tveim hæðum.

      Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    • 2105263 – Bjargsskarð 2, fyrirspurn,deiliskipulag

      Smári Björnsson fh. Almannakórs ehf. leggur 17.5.2021 inn fyrirspurn er varðar breytingu á skipulagi Bjargsskarðs 2. Breytingin felst í fjölgun íbúða um eina við Bjargskarð 2.

      Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir.

    Fundargerðir

    • 2105016F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 837

      Lögð fram fundargerð 837. fundar.

    • 2105024F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 838

      Lögð fram fundargerð 838. fundar.

Ábendingagátt