Skipulags- og byggingarráð

7. janúar 2022 kl. 08:30

á fjarfundi

Fundur 749

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurjón Ingvason varaáheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

  1. Almenn erindi

    • 2101519 – Ásland 4, deiliskipulag

      Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Áslands 4 dags. 10.12.2021 ásamt greinargerð.

      Tekið til umræðu.

    • 2201064 – Hamranes reitur 19.B, deiliskipulag

      Ásgeir Ásgeirsson fh. lóðarhafa leggur 3.1.2022 inn tillögu að deiliskipulagi reitar 19.B dags. 22.12.2021. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur 4-7 hæða fjölbýlishúsum með allt að 70 íbúðum. Gert er ráð fyrir bílastæðum ofanjarðar og möguleika á geymslum í kjallara.

      Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til umsagnar á umhverfis- og skipulagssviði.

    • 2108140 – Hringhamar reitur 25.B, deiliskipulag

      Tekið fyrir að nýju. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 24.8.2021 að auglýsa deiliskipulag reitar 25.B með vísan til tillögu 2. Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarstjórn samþykkti þann 1.9.2021 samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst tímabilið 10.9 – 22.10.2021 Auk þess sem tillagan var kynnt á almennum kynningarfundi þann 30. september sl. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa þann 2.11.2021 að ræða við lóðarhafa og svara framkomnum athugasemdum. Uppfærð deiliskipulagstillaga dags. 8.12.2021 reitar 25.B lögð fram.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2111279 – Reykjanesbraut, deiliskipulag

      Lagt fram álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna breikkunar Reykjanesbrautar frá Krýsuvíkurvegi að Hvassahrauni.

      Fundarhlé gert kl. 9:42.
      Fundi framhaldið kl. 9:47.

      Lagt fram.

    • 2111398 – Skarðshlíð 1. áfangi, breytt deiliskipulag

      Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Skarðshlíðar dags. 5.01.2022 vegna endastöðvar strætó.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Skarðshlíðar 1. áfanga og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 1701175 – Selhraun suður, breyting á deiliskipulagi

      Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna tillögu að breyttu deiliskipulagi svæðisins.

      Skipulags- og byggingarráð þakkar Ásgeiri Ásgeirssyni og Hlín Finnsdóttur frá Tark arkitektum fyrir kynninguna.

    Fyrirspurnir

    • 2112107 – Hringhamar 30b, fyrirspurn

      Þann 6.12.2021 leggja ÞG verktakar inn fyrirspurn varðandi deiliskipulag reitar 30b. Gert er ráð fyrir 4-6 hæðum, stöllun húsa, 55 íbúðum og heimild til atvinnuhúsnæðis á jarðhæð. Gert er ráð fyrir bílakjallara, geymslum og þjónusturými neðanjarðar.

      Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til umsagnar á umhverfis- og skipulagssviði.

    Fundargerðir

    • 2112018F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 864

      Lögð fram fundargerð 864. fundar.

    • 2112025F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 865

      Lögð fram fundargerð 865. fundar.

Ábendingagátt