Umhverfis- og framkvæmdaráð

3. júní 2015 kl. 08:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 237

Mætt til fundar

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Eyrún Ósk Jónsdóttir aðalmaður
  • Birna Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi

Fundinn sátu einnig Sigurður Haraldsson, Dagur Jónsson og Helga Stefánsdóttir

Ritari

  • Helga Stefánsdóttir

Fundinn sátu einnig Sigurður Haraldsson, Dagur Jónsson og Helga Stefánsdóttir

  1. Almenn erindi

    • 1505145 – Undirhlíðarnámur, aðgangur, umsókn

      Tekið fyrir að nýju.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð getur ekki orðið við erindinu að sinni. Ráðið óskar eftir kynningu skipulags- og byggingarsviðs á þeirri vinnu sem átt hefur sér stað við framtíðarnýtingu náma í landi Hafnarfjarðar.

    • 1505339 – Beitarhólfið sameiginlega á Reykjanesskaga, ástand lands og beitarþol.

      Lögð fram skýrsla Landgræðslunar um beitarhólfið á Reykanesi frá desember 2014.

      Lagt fram

    • 1505344 – Kaldárselsvegur, rallakstur Rally í Reykjavík

      Lögð fram beiðni Rally Reykjavík 2015 um leyfi fyrir rallakstri í upplandi Hafnarfjarðar 27. ágúst n.k.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykktir að keppnin verði haldin en óskar eftir að svæðið verði tekið út fyrir og eftir keppnina.

    • 1502390 – Ungmennaráð, fjölgun hjólastíga

      Tekið fyrir.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar erindið. Á þessu ári er áætlað að vinna áfram að gerð hjóla- og göngustíga víðsvegar um bæinn.

    • 1506006 – Samráðshópur um vatnsvernd og vatnsnýtingu á höfuðborgarsvæðinu

      Lagt fram erindi frá SSH.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að skipa Dag Jónsson veitustjóra í starfshópinn.

    • 0809375 – Ásvellir, Haukasvæði, breyting á deiliskipulagi.

      Til kynningar.

      Kynning.

    Fundargerðir

    • 1501326 – Sorpa bs, fundargerðir 2015

      Lögð fram fundargerð nr 350.

      Lagt fram.

    • 15011038 – Strætó bs, fundargerðir 2015

      Lögð fram fundargerð nr. 218.

      Lagt fram.

    • 1110137 – Umhverfisteymi fundargerðir

      Lögð fram fundargerð nr. 42.

      Lagt fram.

    • 1411359 – Ásvellir, starfshópur v/uppbyggingar 2015

      Lögð fram fundargerð starfshópsins nr. 5

      Lagt fram.

Ábendingagátt