Fjögurra daga sumarnámskeið á vegum Bókasafns Hafnarfjarðar.
Aldur:
10-12 ára
Dagsetning:
10.-13. Júní (4 dagar)
Tímasetning:
Frá kl. 10-14
Hámarksfjöldi þátttakenda er 12

Ókeypis námskeið í tónlistarspuna sem snýr að gerð tónlistar fyrir tölvuleiki. Námskeiðið byggir á mastersverkefni Höskuldar Eiríkssonar frá Listaháskóla Íslands.
Þátttakendur munu búa til sína eigin tónlist fyrir tölvuleik og fá að kynnast fjölbreyttum hljóðfærum, aðferðum og kenningum um gerð tölvuleikjatónlistar.

Höskuldur lauk BA-gráðu í skapandi tónlistarmiðlun og mastersgráðu í listkennslufræðum. Höskuldur hefur starfað með fjölda listamanna og hljómsveita eins og Amabadama, Godchilla, Krummi og Krákurnar, Útidúr, Plastic Gods, Halleluwah og margt fleira.

Skráning í tölvupósti á bokasafn@hafnarfjordur.is eða í skilaboðum á Facebook, símleiðis  eða í persónu á safninu (nafn, aldur, sími og tölvupóstur forráðamanns).

Ábendingagátt