Deildarstjóri Bjargs – Hvaleyrarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 28.08.2024

Umsóknarfrestur til: 11.09.2024

Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson

Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra Bjargs, móttökudeild fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd í 80-100% starf. 

Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, markvissar málörvunar og byrjendalæsis ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast deildarstjórn í Bjargi
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Er í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Hafnarfjarðarbæjar
  • Vinnur að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði
  • Farsæl kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg 
  • Reynsla af teymisvinnu kostur
  • Þekking og/eða reynsla af SMT-skólafærni æskileg
  • Leiðtogafærni, skipulagshæfileikar og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti 

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2024.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf