Deildarstjóri yngsta stigs – Setbergsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 26.11.2024

Umsóknarfrestur til: 10.12.2024

Tengiliður: María Pálmadóttir

Tímabundin afleysing frá 01.01.2025 – 31.07.2025

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.

Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.

Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika, góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. Deildarstjóri situr í stjórnunarteymi skólans, er faglegur leiðtogi og stýrir skólastarfi á sínu stigi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stýrir sameiginlegu daglegu starfi innan kennslustigs í samvinnu við aðra stjórnendur.
  • Hefur yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs, s.s. vali, ferðum, óhefðbundum skóladögum, hátíðum, deildarskipulag af ýmsu tagi og öðrum sameiginlegum verkefnum.
  • Annast eftirfylgni skólanámskrárgerðar og kennsuáætlana innan deildar (vikuáætlanir o.fl.) og aðfanga til kennslu.
  • Stýrir samráðsfundum deildar og styðja við kennara stigs, m.a. móttöku nýrra starfsmanna deildar.
  • Tekur á hegðunarvanda nemenda á kennslustiginu og er tengiliður við foreldra nemenda.
  • Boðar og stýrir, í samráði við umsjónarkennara og aðra stjórnendur, skilafundum vegna nemenda deildarinnar.
  • Stýrir sameiginlegum verkefnum, miðlægum verkefnum og uppákomum deildar.
  • Annast upplýsingamiðlun deildar, s.s. fyrir fréttabréf, skólavef og til foreldra.
  • Aðstoðar kennara deildar við dagleg verkefni og veitir þeim kennsluráðgjöf.
  • Styður við kennara deildar vegna kennslu, agamála og samskipta við foreldra og stofnanir utan skólans.
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild.
  • Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina yngsta stigs.
  • Reynsla af- og/eða þekking á SMT-skólafærni og Olweusaráætlun æskileg.
  • Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi.

Skilyrði við ráðningu er hreint sakavottorð.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 3. desember 2024.

Ráðið er í stöðuna frá 1. janúar 2025

Upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 6645880 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf