Flokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 03.03.2023

Umsóknarfrestur til: 03.04.2023

Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen

Á sumrin er Vinnuskóli Hafnarfjarðar stærsta starfstöðin í bænum. Starf í skólanum gefur einstaka möguleika á því að njóta útiveru og eiga þátt í að prýða bæjarlandið í samstarfi við ungt fólk. Vinnuskólinn starfar eftir áherslum Grænfána og er skóli án aðgreiningar.

Eftirfarandi störf eru í boði í sumar. Vinsamlegast veljið fyrsta og annað val. Umsækjendur þurfa að hafa náð 21 árs aldri (fædd 2002 eða eldri).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun starfs vinnuskólahóps
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð og verklag
  • Vinna með uppbyggileg samskipti og skapa liðsheild í nemendahópnum
  • Skil á tímaskýrslum nemenda
  • Önnur störf samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með ungu fólki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Samskiptafærni og hæfni til að vera nemendum góð fyrirmynd
  • Þekking á starfi Vinnuskólans eða önnur reynsla af starfi með börnum eða unglingum er kostur
  • Reynsla af garðyrkju- og umhirðutengdum störfum er kostur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hafnarfjarðarbæjar
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 21 árs aldri

Flokkstjórar almennra hópa

Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við flokkstjórn almennra hópa Vinnuskólans sem starfa út frá grunnskólum Hafnarfjarðar.

Starfstímabilið eru tveir mánuðir frá 1. júní – 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá kl. 8:00 til 12:00. Flokkstjórar hópa geta unnið samtals 264 tíma frá byrjun júní til lok júlí.

Flokkstjóri morgunshóps

Auglýst er eftir flokkstjóra til sumarstarfa við morgunshóp Vinnuskólans sem starfar í miðbæ Hafnarfjarðar. Í hópnum starfa aðeins ungmenni sem verða 17 ára á árinu.

Starfstímabilið er frá 23. maí – 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 7:00 til 13:00 mánudaga til föstudaga. Flokkstjóri morgunhóps getur unnið samtals 264 tíma í sumar.

Flokkstjóri hjá félagi (íþróttafélagi og fleira)

Auglýst er eftir flokkstjórum til sumarstarfa við flokkstjórn á vegum íþróttafélaga í Hafnarfirði. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hjá hvaða félagi umsækjandi óskar eftir sumarstarfi.

Flokkstjóri stýrir verkefnum og hópum innan félagsins s.s. við umhirðu svæðis eða á leikjanámskeiði. Flokkstjórar hjá íþróttafélögum geta unnið samtals 264 tíma frá byrjun júní fram í miðjan ágúst.

Flokkstjóri Listahóps

Auglýst er eftir flokkstjóra til sumarstarfa við Listahóp Vinnuskólans. Starfstímabilið er tveir mánuðir frá 1. júní – 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá kl. 8:00 til 12:00. Flokkstjórar hópa geta unnið samtals 264 tíma frá byrjun júní til lok júlí.

Flokkstjóri jafningafræðslu/grænafánahóps

Auglýst er eftir flokkstjóra til sumarstarfa við jafningafræðslu Vinnuskólans. Jafningafræðsla sumarsins leggur áherslu á umhverfismál og markmið hópsins er að auka umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og að styrkja umhverfisstefnu Vinnuskólans. Unnið verður eftir stefnu skóla á grænni grein og sótt verður um endurnýjun Grænfána í lok sumars.

Starfstímabilið er tveir mánuðir frá 1. júní – 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá kl. 8:00 til 12:00. Flokkstjórar hópa geta unnið samtals 264 tíma frá byrjun júní til lok júlí.

Flokkstjórar í Hellisgerði

Auglýst er eftir starfsfólki til sumarstarfa við flokkstjórn í garðyrkjuhóp í Hellisgerði. Starfstímabilið er tveir mánuðir frá 1. júní – 31. júlí. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og föstudaga frá kl. 8:00 til 12:00. Flokkstjórar hópa geta unnið samtals 264 tíma frá byrjun júní til lok júlí.

Umsóknafrestur er til og með 2. apríl nk.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Hlíf stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Tinna Dahl Christiansen, rekstrarstjóri, í gegnum tölvupóst tinnadahl@hafnarfjordur.is

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.

Önnur störf