Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 05.05.2025

Umsóknarfrestur til: 19.05.2025

Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir

Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.

Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk, í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast almenna heimilisfræðikennslu á öllum stigum í samvinnu við skólastjórnendur og aðra kennara
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  •  Áhugi og/eða reynsla af heimilisfræðikennslu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, margret.sverrrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, aslaughr@oldutunsskoli.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 19.maí 2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla
Kennari í námsveri – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Deildarstjóri á mið- og unglingastigi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Kennari í mið- og unglingadeild fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing til áramóta
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Sérkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Skrifstofustjóri – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi – Engidalsskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Aðstoðarskólastjóri – Öldutúnsskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli