Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 14.04.2025
Umsóknarfrestur til: 28.04.2025
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Deila starfi
Öldutúnsskóli auglýsir eftir kennara á unglingastigi.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk, í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, margret.sverrrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, aslaughr@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 01.03.2025
Umsóknarfrestur til: 31.08.2025
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Tengiliður: Dagný Kristinsdóttir
Víðistaðaskóli leitar eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi heimilisfræðikennara í fullt starf, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem og annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 15.04.2025
Umsóknarfrestur til: 08.05.2025
Tengiliður: siggih@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir forstöðumanni þjónustumiðstöðvar.
Þjónustumiðstöðin sér um umhirðu á bæjarlandinu og um margvíslega þjónustu og framkvæmdir fyrir bæinn, stofnanir og íbúa. Starfsmenn eru 20 og er starfsstöðin að Norðurhellu 2. Verkefnin eru mörg og oft árstíðabundin, til dæmis viðhald, viðgerðir og eftirlit á ýmsu sem tilheyrir gatnakerfinu, göngustígum, opnum svæðum og leikvöllum.
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí n.k.
Upplýsingar um starfið veitir Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í gegnum netfangið siggih@hafnarfjordur.is eða í síma 6645631.
Laun eru samkvæmt kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur til: 29.04.2025
Umsjónarkennari í 1. bekk í Víðistaðaskóla
Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi umsjónarkennara í 1. bekk í 80-100% starf. Viðkomandi bætist í góðan hóp annarra starfsmanna skólans. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 29.apríl 2025
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 23.04.2025
Umsóknarfrestur til: 07.05.2025
Tengiliður: María Pálmadóttir
Setbergsskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 420 auk þess sem starfrækt er sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru. Í skólanum er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á sköpun, fjölbreytt námsumhverfi, vellíðan, læsi, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vinsemd og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Menntunar – og hæfnikröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2025.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Tengiliður: maria@setbergsskoli.is
Setbergsskóli óskar eftir þroskaþjálfa í 100% starfshlutfall.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar – og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.setbergsskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025
Greinargóð ferilskrá og starfsleyfi fylgi umsókn.
Tengiliður: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Skilyrði er að hafa náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Tengiliður: Hrönn Bergþórsdóttir
Við í Víðistaðaskóla leitum að skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í hönnun- og smíði, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 664-5890, dagnyk@vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 7.maí 2025
Tengiliður: bjarnveig@laekjarskoli.is
Lækjarskóli óskar eftir að ráða í spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Vitann sem er hluti af tómstundamiðstöð skólans. Félagsmiðstöðin býður börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur.
Vitinn er félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 5. – 10. bekk í Lækjarskóla. Vitinn leggur áherslu á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir unglinga ásamt sértæku hópastarfi og tímabundnum verkefnum. Vitinn kemur að mörgun viðburðum innan skólans og í samvinnu við aðrar félagsmiðstöðvar.
Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni. Verkefnastjóri í félagsmiðstöð ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni.
Um er að ræða 50-75% starf. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar um starfið veita Bjarnveig Dagsdótir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, bjarnveig@laekjarskoli.is. Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.laekjarskoli.is
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í tónmennt
Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi kennara í tónmennt, sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann.
Í Víðistaðaskóla er rík hefð fyrir góðri og öflugri tónmenntakennslu. Tónmenntakennarinn sér um samsöng nemenda á yngsta stigi, kemur að kennslu í list og verkgreinarúllum og valgreinum á yngsta og miðstigi. Á hverju ári setja nemendur í 10.bekk söngleik á svið og þar gefst tónmenntakennara tækifæri á að koma að spennandi og skapandi verkefni. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í skólanum eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Hjá okkur ríkir góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 25.04.2025
Umsóknarfrestur til: 09.05.2025
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi fyrir skólaárið 2025-2026
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur einnig ríka áherslu á umhverfismál.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu samband við okkur.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri; aslaughr@oldutunsskoli.is.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2025
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi.
Tengiliður: Arna B. Arnardóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf haustið 2025.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við, Örnu B. Arnardóttur skólastjóra í síma 6645865, arna@laekjarskoli.is eða Margréti Ósk Gunnarsdóttur deildarstjóri stoðþjónustu, margreto@laekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2025.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Víðistaðaskóli óskar eftir deildarstjóra tómstundamiðstöðvar í fullt starf.
Okkur í Víðistaðaskóla vantar deildarstjóra tómstunda sem stýrir daglegu starfi í frístundaheimilinu Hraunkoti og félagsmiðstöðinni Hrauninu. Við leitum að samstarfsmanneskju sem er með góðar hugmyndir og metnað fyrir faglegu og góðu starfi með börnum og unglingum.
Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð- virðing- vinátta. Við leggjum áherslu á liðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.
Helstu verkefni:
Menntunar og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, dagnyk@vidistadaskoli.is í síma 664-5890 eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða til starfa. Um er að ræða 70% starf út þetta skólaár. Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni.
Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl 2025.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Umsóknarfrestur frá: 03.03.2025
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Umsóknarfrestur til: 27.04.2025
Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson
Hvaleyrarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi.
Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 23. apríl næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur frá: 02.04.2025
Umsóknarfrestur til: 31.05.2025
Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen
Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista fyrir sumarstarf hjá Hafnarfjarðarbæ, 18 ára og eldri. Biðlistinn verður opinn til og með 31. maí 2025.
Á þessari stundu er alls óvíst hvort ráðið verður af biðlistanum og eru umsækjendur hvattir til að sækja einnig um annars staðar.
Vinnuskólinn býður upp á fjölbreytt störf t.d. við flokkstjórn, slátt, garðyrkjustörf, sumarnámskeið og fleira.
Fyrirspurnir má senda á skrifstofu Vinnuskólans á vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur frá: 18.04.2025
Umsóknarfrestur til: 02.05.2025
Tengiliður: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónar- og faggreinakennslu á unglingastigi skólaárið 2025-2026. Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 2. maí 2025.
Umsóknarfrestur frá: 07.04.2025
Tengiliður: Ólafía Guðmundsdóttir
Við leitum að deildarstjóra í öflugan hóp stjórnenda þar sem lögð er áhersla á samvinnu innan hópsins en jafnframt að hver og einn deildarstjóri fái sjálfstæði og svigrúm til að þróa sína deild í anda starfsaðferða skólans.
Leikskólinn Hlíðarberg er 5 deilda leikskóli í Setbergshverfi. Þar dvelja að jafnaði 94 börn og starfa 32 starfsmenn. Einkunnarorð leikskólans er hreyfing, sköpun, vellíðan og tekur starfið mið af þeim. Unnið er eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Leikrými barnanna er gott og listasmiðja á hverri deild. Sameiginlegur salur er fyrir allar deildir. Góð vinnuaðstaða er fyrir starfsfólk.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ólafía Guðmundsdóttir leikskólastjóri, olafia@hafnarfjordur.is eða í síma 578-4309 og
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2025
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Tengiliður: Þórunn Jóna Hauksdóttir
Lækjarskóli í Hafnarfirði leitar að árangursdrifnum stjórnanda í starf aðstoðarskólastjóra. Hér gefst kjörið tækifæri fyrir áhugasaman og metnaðarfullan einstakling sem vill taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu skólastarfs í skapandi og faglegu umhverfi.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og stendur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í hjarta Hafnarfjarðar. Skólinn starfar í björtu og rúmgóðu húsnæði sem tekið var í notkun árið 2002 og býður meðal annars upp á sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 430 í 1.–10. bekk.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skólamálum, leggur sig fram um að byggja upp traust og samstarf og hefur áhuga á að taka þátt í spennandi vegferð með okkur.
Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jóna Hauksdóttir, deildarstjóri grunnskólamála, á netfangið thorunnjona@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl nk.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir tónmenntakennara.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir heimilisfræðikennara.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir sérkennara í sérdeild.
Í Öldutúnsskóla er sérdeild fyrir nemendur á unglingastigi með væga þroskaröskun og er opin öllum skólahverfum bæjarins. Deildin starfar samkvæmt lögum um grunnskóla en þar er kveðið á um að nemendur með sérþarfir fái viðeigandi kennslu og stuðning í heimaskóla. Allir nemendur sérdeildarinnar eru skráðir í almenna bekki skólans. Sá bekkur sem nemandinn er skráður í er í daglegu tali nefndur tengslabekkur og taka nemendur þátt í bekkjarstarfinu að einhverju marki. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir nemendur í upphafi skólaárs og endurmetin við annarskil. Við reglulegt mat á námi nemenda eru framfarir metnar og tekið er tillit til breytinga við gerð nýrrar áætlunar.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, Margrét Sverrisdóttir og Linda Sjöfn Sigurðardóttir deildarstjóri stoðþjónustu.
Umsóknarfrestur er til 28. apríl nk.
Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennurum til að sinna umsjónarkennslu á yngsta og/eða miðstigi skólaárið 2025-2026.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, gudbjorgi@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 9. maí 2025.