Kennsla í ensku og umsjón á unglingastigi – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 22.05.2023

Umsóknarfrestur til: 05.06.2023

Tengiliður: Lars J. Imsland

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna enskukennslu og umsjón á unglingastigi skólaárið 2023-2024.

Leitað er eftir kennara sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi á unglingastigi þar sem lögð er áhersla á samþættingu námsgreina, sjálfstæði nemenda og samvinnu kennara. Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Annast enskukennslu og umsjón á unglingastigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra.

Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans

Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk

Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.

Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans

Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)

Reynsla af kennslu æskileg

Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum

Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni

Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

Stundvísi og samviskusemi

Góð íslenskukunnátta

Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Ásta Björk Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri astabjork@hraunvallaskoli.is og Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir aðstoðarskólastjóri gudbjorgn@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júní 2023.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf