Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 09.05.2025

Umsóknarfrestur til: 25.05.2025

Tengiliður: Kristinn Guðlaugsson

Hvaleyrarskóli auglýsir eftir myndmenntakennara í 80-100% starf.

Í Hvaleyrarskóla eru um 400 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa þannig jákvæðan skólabrag. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu. Einkunnarorð Hvaleyrarskóla eru kurteisi, ábyrgð og samvinna

Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistarkennslu.

Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í myndmennt
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk með áherslu á teymisvinnu
  • Starfa eftir Aðalnámskrá grunnskóla
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni til að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Fagleg þekking á sviði myndmenntakennslu
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Lipurð og jákvæðni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
  • Víðtæk tölvukunnátta og góð þekking á G-suite og Mentor
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi

Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. 

 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Deildarstjóri á mið- og unglingastigi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla
Kennari í námsveri – Hvaleyrarskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing til áramóta
Kennari í mið- og unglingadeild fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Sérkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi – Engidalsskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Skrifstofustjóri – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Víðistaðaskóli
Aðstoðarskólastjóri – Öldutúnsskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli