Náms- og starfsráðgjafi – Engidalsskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 27.09.2024

Umsóknarfrestur til: 14.10.2024

Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir

Um er að ræða 50% starf en til greina kemur að hækka starshlutfall með kennslu.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, í vetur eru nemendur um 200.

Í Engidalsskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi, auk þess sem vellíðan nemenda og starfsmanna er ávallt höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, samþættingu námsgreina og teymisvinnu. Skólinn er heilsueflandi og flaggar grænfána þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt. Skólinn starfar samkvæmt uppeldi til ábyrgðar. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
  • Að sitja í nemendaverndaráði og eineltisteymi skólans
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að veita nemendum, foreldrum og starfsfólki ráðgjöf varðandi nám, námstækni, námsvenjur, líðan, kvíða og samskiptavanda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Góða íslenskukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 14. október nk. 

Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.

Launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf