Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 05.05.2025

Umsóknarfrestur til: 19.05.2025

Tengiliður: Arna B. Arnardóttir

Lækjarskóli óskar eftir að ráða safnstjóra skólasafns í 80% starf.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.  

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. 

Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL) sem er aðferðafræði byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984).  UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Halda utan um starfsemi bókasafnsins
  • Annast innkaup á nýjum bókum/safnkosti
  • Skrá og flokka bókakost safnsins
  • Aðstoða nemendur við upplýsingaöflun og bókaval
  • Starfa náið með starfsfólki og veita þeim ráðgjöf
  • Fræðsla um bókasafns- og upplýsingalæsi
  • Þátttaka í lestrarhvetjandi verkefnum og halda utan um bókaklúbba
  • Taka á móti nemendahópum á safnið og veita fræðslu
  • Þátttaka í þróunarverkefnum skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar og hæfniskröfur:

  • M.A próf í upplýsingafræði eða B.A próf í upplýsingafræði og mikil starfsreynsla á sérsviðinu. 
  • Þekking á Ölmu bókasafnskerfi kostur
  • Reynsla og þekking af stöfum á bókasafni æskileg
  • Nákvæmni í vinnubrögðum
  • Brennandi áhugi á starfi með börnum og ungmennum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Frumkvæði og skipulagshæfileikar
  • Mjög góð tölvukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Björný Arnardóttir skólastjóri, arna@laekjarskoli.is eða í síma 664-5865.

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Önnur störf

Starfsheiti Umsóknarfrestur Frestur
Safnstjóri skólasafns Lækjarskóla
Kennari í námsveri – Hvaleyrarskóli
Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari í miðdeild fyrir næsta skólár– Skarðshlíðarskóli
Deildarstjóri á mið- og unglingastigi – Skarðshlíðarskóli
Umsjónarkennari á yngsta stigi – Lækjarskóli
Heimilisfræðikennari – Öldutúnsskóli
Kennari í mið- og unglingadeild fyrir næsta skólaár – Setbergsskóli
Kennsla í hönnun og smíði í Setbergsskóla – afleysing til áramóta
Sérkennari – Skarðshlíðarskóli
Íþróttakennari – Skarðshlíðarskóli
Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Sérkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Skrifstofustjóri – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi – Engidalsskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig – Víðistaðaskóli
Heimilisfræðikennari – Víðistaðaskóli
Umsjónarkennari á miðstigi – Öldutúnsskóli
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar – Víðistaðaskóli
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Aðstoðarskólastjóri – Öldutúnsskóli
Tónmenntakennari – Víðistaðaskóli