Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Umsóknarfrestur frá: 03.06.2025
Umsóknarfrestur til: 19.06.2025
Tengiliður: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir
Deila starfi
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem sérfræðing á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2025
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur frá: 16.06.2025
Umsóknarfrestur til: 01.07.2025
Tengiliður: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Hraunvallaskóli auglýsir eftir aðstoðardeildarstjóra í tómstundamiðstöð í fullt starf frá 10. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. Vinnutíminn er virkir dagar frá kl. 08:00-16:00/09:00-17:00.
Tómstundamiðstöð Hraunvallskóla samanstendur af frístundaheimilinu Hraunsel og félagsmiðstöðinni Mosanum. Í frístundaheimilinu Hraunsel er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir nemendur á aldrinum 6-9 ára eftir að hefðbundnum skóladegi líkur til kl. 16:30 alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Félagsmiðstöðin Mosinn er fyrir börn og unglinga í 5.-10. bekk og er opin að jafnaði þrjú kvöld/eftirmiðdaga í viku. Aðaláherslan er á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir alla í 5.-10. bekk. Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Hraunvallaskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í fallegu umhverfi í hrauninu í Vallarhverfi í Hafnarfirði. Einkunnarorð skólans eru vinátta, samvinna og ábyrgð. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Verkefni aðstoðardeildarstjóra:
Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Hann ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Hann vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðvar og sér um skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi.
Menntunar og hæfniskröfur:
Ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir aðstoðarskólastjóri, gudbjorgi@hraunvallaskoli.is, Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Umsóknarfrestur frá: 10.06.2025
Umsóknarfrestur til: 24.06.2025
Tengiliður: Dagný Kristinsdóttir
Víðistaðaskóli leitar eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi heimilisfræðikennara sem bætist í góðan hóp annarra list og verkgreinakennara sem starfa við skólann. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð- virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem og annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Starfshlutfall er 100% og er ráðning ótímabundin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, valaj@vidistadaskoli.is
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 24.júní 2025
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Tengiliður: robertg@setbergsskoli.is
Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2025 – 2026. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:30, alla virka daga.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Róbert Gíslason, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, robertg@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júní.
Umsóknarfrestur frá: 04.06.2025
Umsóknarfrestur til: 18.06.2025
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara á miðstigi fyrir skólaárið 2025-2026
Við leitum að nýjum liðsmanni í öflugan hóp kennara á miðstigi skólans. Við leitum að kennara sem er tilbúinn að koma í ný verkefni, samvinnu með samstarfsfólki og leiða skemmtilegan hóp nemenda.
Víðistaðaskóli er heildstæður skóli með 510 nemendur. Leiðarljós skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.
Helstu verkefni:
Hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 595-5800 eða dagnyk@vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 18.júní
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur frá: 09.06.2025
Tengiliður: Lind Einarsdóttir
Langar þig að starfa í framsækinni mannauðs- og launadeild? Deildin tilheyrir stjórnsýslusviði og og er næsti yfirmaður mannauðsstjóri. Þessi flotta deild samanstendur af 11 manna teymi sem tekst á við fjölbreytt verkefni alla daga og vinna sameiginlega að því að veita góða þjónustu. Verkefnin eru fjölbreytt og í deildinni starfa t.d. mannauðsráðgjafar, launafulltrúar og launasérfræðingar. Núna vantar okkur launasérfræðing í teymið okkar og leitum við að aðila sem er talnaglöggur og hefur unnið við launavinnslu. Mikill kostur er ef þú hefur gaman af gagnagreiningu og finnst spennandi að þróa áfram með okkur t.d. PowerBI skýrslur og fleiri tól sem við erum að nýta okkur í dag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, linde@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Visku.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.
Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknarfrestur til: 23.06.2025
Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi umsjónarkennurum á yngsta stig skólans. Viðkomandi kennarar bætast í góðan hóp annarra starfsmanna skólans. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.
Starfshlutfall er 80-100% og er ráðning ótímabundin.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, í síma 6645890, dagnyk@vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 23.júní 2025
Umsóknarfrestur frá: 06.06.2025
Tengiliður: geir@hafnarfjordur.is; stellabjorg@hafnarfjordur.is
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar auglýsir eftir póskumælandi ráðgjafa í menningarmiðlun (brúarsmið) Um er að ræða 50-100% stöðu tímabundið í hálft ár, ráðið er í stöðuna frá 5. ágúst 2025.
Á skrifstofu mennta- og lýðheilsusviðs hjá Hafnarfjarðarbæ starfar fagfólk úr ýmsum fagstéttum að veitingu þjónustu til leik- og grunnskóla, dagforeldra, frístundaheimila og tónlistarskóla auk þess að annast stjórnsýslumálefni þeirra hjá sveitarfélaginu.
Markmið starfsins er að fræða og veita stuðning og ráðgjöf við foreldra og kennara vegna barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í grunnskóla. Starfið fer að miklu leyti fram á vettvangi skóla og íþrótta- og frístundastarfs. Vinnustöð starfsmanns er að Strandgötu 41. Starfið er á vegum mennta- og lýðheilsusviðs og heyrir undir íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Nánari upplýsingar veitir Geir Bjarnason, frístunda- og tómstundafulltrúi í gegnum netfangið geir@hafnarfjordur.is eða í síma: 6645754.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar auglýsir eftir spænskumælandi ráðgjafa í menningarmiðlun (brúarsmið) Um er að ræða 50-100% stöðu tímabundið í hálft ár, ráðið er í stöðuna frá 5. ágúst 2025.
Umsóknarfrestur til: 20.06.2025
Víðistaðaskóli óskar eftir deildarstjóra tómstundamiðstöðvar í fullt starf.
Okkur í Víðistaðaskóla vantar deildarstjóra tómstunda sem stýrir daglegu starfi í frístundaheimilinu Hraunkoti og félagsmiðstöðinni Hrauninu. Við leitum að samstarfsmanneskju sem er með góðar hugmyndir og metnað fyrir faglegu og góðu starfi með börnum og unglingum.
Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð- virðing- vinátta. Við leggjum áherslu á liðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.
Umsóknarfrestur er til og með 20.júní 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir skólastjóri, dagnyk@vidistadaskoli.is í síma 664-5890 eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur frá: 11.06.2025
Langar þig að starfa í framsækinni mannauðs- og launadeild? Deildin tilheyrir stjórnsýslusviði og og er næsti yfirmaður mannauðsstjóri. Þessi flotta deild samanstendur af 11 manna teymi sem tekst á við fjölbreytt verkefni alla daga og vinna sameiginlega að því að veita góða þjónustu. Verkefnin eru fjölbreytt og í teyminu starfa t.d. mannauðsráðgjafar, launafulltrúar og launasérfræðingar. Starfið hentar t.d. háskólanema sem er talnaglöggur og hefur góða mjög tölvukunnáttu sem er tilbúinn að koma í sérverkefni tengt launamálum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH.
Starfið er laust og ráðið verður ráðið í það til næstu 3 mánaða.
Umsóknarfrestur til: 25.06.2025
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir kennara á unglingastigi.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. – 10. bekk, í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, margret.sverrrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, aslaughr@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2025.
Tengiliður: María Pálmadóttir
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra yngsta stigs við Setbergsskóla
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.
Umsækjandi þarf að hafa leiðtogahæfileika, góða og víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn. Deildarstjóri situr í stjórnunarteymi skólans, er faglegur leiðtogi og stýrir skólastarfi á sínu stigi.
Skilyrði við ráðningu er hreint sakavottorð.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025
Upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 6645880 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur til: 26.06.2025
Tengiliður: Guðmundur Elíasson
Laus er til umsóknar staða starfsmanns fráveitu hjá Hafnarfjarðarbæ. Starfsmaður fráveitu aðstoðar við viðhalds- og eftirlitsverkefni sem honum eru falin. Hann ber ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði fráveitna sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Um er að ræða 100% starf. Starfið heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið sem er með aðsetur að Norðurhellu 2.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri í síma 585-5500 eða í gegnum tölvupóst: gudmundure@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2025.
Umsóknarfrestur frá: 13.06.2025
Umsóknarfrestur til: 27.06.2025
Tengiliður: Geir Bjarnason
Hafnarfjarðarbær leitar að drífandi einstaklingi til að gegna starfi rekstrarstjóra íþrótta- tómstundamála. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem tengjast rekstri Vinnuskóla Hafnarfjarðar, íþróttamála, félagsmiðstöðva og frístundaheimila. Rekstrarstjóri vinnur náið með íþrótta- og tómstundafulltrúa, fjölbreyttum hópi starfsfólks og samstarfsaðilum á sviði íþrótta og tómstunda, bæði innan bæjarins og í nærsamfélaginu , þar með talið íþróttafélög, stofnanir og félagasamtök.
Starfið hentar þeim sem hafa reynslu af rekstri, starfsmannamálum, viðburðarstjórnun og þeim sem hafa áhuga á að stuðla að uppbyggingu öflugs tómstundastarfs í þágu barna og ungmenna.
Ef þú hefur áhuga á að sinna fjölbreyttu starfi og hafa jákvæð áhrif á samfélagið þá er þetta tækifærið fyrir þig.
Menntunnar- og hæfniskröfur:
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2025
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn. Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga.
Nánari upplýsingar gefur yfirmaður viðkomandi starfs, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi í gegnum netfangið geir@hafnarfjordur.is og í síma 6645754.
Tengiliður: Arna Björný Arnardóttir
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra stoðþjónustu og sérkennara við skólann, til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í Lækjarskóla haustið 2025.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Nemendur eru um 450 talsins. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með fjögur meginmarkmið: Samstarf heimils og skóla, heilbrigði og vellíðan, aukinn árangur nemenda og altæka hönnun náms (UDL).
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Á síðasta skólaári hófst innleiðing á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Menntun og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Arna Björný Arnardóttir, skólastjóri í síma 664-5865 eða með tölvupósti arna@laekjarskoli.is
Greinagóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Umsóknarfrestur frá: 12.06.2025
Tengiliður: Bjarnveig Dagsdóttir
Félagsmiðstöðin Vitinn býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Vitinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Ráðið er frá ágúst 2025.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Tengiliður: dagnyk@vidistadaskoli.is
Víðistaðaskóli auglýsir stöður tveggja til þriggja kennara í Veröld sem er nýtt skólaúrræði vegna barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Veröld byggir á góðu starfi sem þróað hefur verið undanfarin ár sem kennslu- og stuðningsúrræði fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Við leitum að reynslumiklu, skipulögðu og áhugasömu fagfólki sem er tilbúið að leggja í þá vegferð að byggja upp og skapa faglegt og gott skólaumhverfi fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð- virðing- vinátta. Við leggjum áherslu á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.
Um er að ræða 80-100% stöður. Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2025.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, dagnyk@vidistadaskoli.is sími 6645890
Tengiliður: Arna B. Arnardóttir
Lækjarskóli óskar eftir að ráða safnstjóra skólasafns í 80% starf.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL) sem er aðferðafræði byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Björný Arnardóttir skólastjóri, arna@laekjarskoli.is eða í síma 664-5865.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga
Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum náttúrufræði- og stærðfræðikennara með umsjón í unglingadeild til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Ráðið er í starfið frá og með 1. ágúst 2025.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Nánari upplýsingar gefur Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Víðistaðaskóli auglýsir stöðu deildarstjóra í Veröld sem er nýtt skólaúrræði vegna barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Veröld byggir á góðu starfi sem þróað hefur verið undanfarin ár sem kennslu- og stuðningsúrræði fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Við leitum að framsýnni, skipulagðri og áhugasamri manneskju sem er tilbúin að leggja í þá vegferð að byggja upp og skapa faglegt og gott skólaumhverfi fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Um 100% starf er að ræða, sem skiptist í stjórnun og kennslu. Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur frá: 05.06.2025
Umsóknarfrestur til: 22.06.2025
Tengiliður: Harpa Kolbeinsdóttir
Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennara í 100% starf.
Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru „Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins“
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2025
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum atferlisfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1.-10. bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Umsóknarfrestur er til 18. júní 2025.
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags
Umsóknarfrestur frá: 30.05.2025
Tengiliður: Fanney D. Halldórsdóttir
Staða skólastjóra Hamranesskóla í Hafnarfirði er laus til umsóknar
Ráðið verður í stöðuna frá 1. nóvember næstkomandi.
Í Hamranesi í Hafnarfirði mun rísa heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 16 ára. Skólinn verður byggður samkvæmt metnaðarfullri hugmyndafræði og býður uppá spennandi tækifæri til nýbreytni í skólastarfi. Í skólanum er gert ráð fyrir frístundaheimili og félagsmiðstöð ásamt útbúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Leitað er að öflugum leiðtoga sem hefur hæfni til að mynda samhenta liðsheild og þróa jákvæðan skólabrag sem stuðlar að vellíðan, samvinnu, fjölbreytileika og sköpun í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn og hugmyndaríkan einstakling til að byggja upp eftirsóknarverðan vinnustað og leiða uppbyggingu og mótun skólastarfs frá grunni.
Hafnarfjarðarbær vinnur eftir verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn sem kallast Brúin. Í því er lögð áhersla á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí n.k.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, í síma 585-5800, fanney@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Lækjarskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra í 80% starf. Starfið er tímabundin afleysing, frá 1. ágúst 2025 – 15. júní 2026.
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Lækjarskóli er almennur, heildstæður, grunnskóli. Lækjarskóli er staðsettur í fallegu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Í Lækjarskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á vellíðan nemenda og starfsmanna og er leiðarljós skólans ábyrgð, virðing og vellíðan.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
Menntunar – og hæfnikröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arna Björný Arnardóttir, skólastjóri, í síma 664-5865 eða í gegnum netfangið arna@laekjarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Lækjarskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf haustið 2025.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við, Örnu B. Arnardóttur skólastjóra í síma 6645865, arna@laekjarskoli.is eða Margréti Ósk Gunnarsdóttur deildarstjóri stoðþjónustu, margreto@laekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur til: 30.06.2025
Tengiliður: Tinna Dahl Christiansen
Ákveðið hefur verið að opna fyrir umsóknir á biðlista fyrir sumarstarf hjá Hafnarfjarðarbæ, 18 ára og eldri. Biðlistinn verður opinn til og með 30. júní 2025.
Á þessari stundu er alls óvíst hvort ráðið verður af biðlistanum og eru umsækjendur hvattir til að sækja einnig um annars staðar.
Vinnuskólinn býður upp á fjölbreytt störf t.d. við flokkstjórn, slátt, garðyrkjustörf, sumarnámskeið og fleira.
Fyrirspurnir má senda á skrifstofu Vinnuskólans á vinnuskoli@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur frá: 03.03.2025
Umsóknarfrestur til: 31.08.2025
Tengiliður: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Umsóknarfrestur frá: 01.03.2025
Tengiliður: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknarfrestur frá: 15.06.2025
Tengiliður: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir auglýsir eftir deildarstjóra á deild fyrir börn 3-5 ára í fullt starf. Þarf að geta hafið störf í ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Á Víðivöllum starfar áhugasamur og metnaðarfullur hópur leikskólakennara, þroskaþjálfa, starfsmanna með aðra háskólamenntun og leikskóla- og frístundaliða. Lögð er sérstök áhersla á öfluga og samþætta þjónustu við þau börn sem þurfa á að halda og fjölskyldur þeirra og er skólinn í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga. Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum.
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Svanhildur Birkisdóttir leikskólastjóri eða Eyrún Edvardsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-3599
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 22.júní 2025
Umsóknarfrestur til: 17.06.2025
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veita Telma Ýr Friðriksdóttir leikskólastjóri í síma 555-4941 eða í gegnum netfangið bjarkalundur@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til 17. júní 2025
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða metnaðarfullan þroskaþjálfa í stöðu verkefnastjóra í einhverfudeild Hraunvallaskóla.
Viðkomandi mun leiða og taka þátt í að byggja upp og þróa úrræði fyrir nemendur í 1.–10. bekk í Hafnarfirði. Um er að ræða 100% starf sem skiptist í 50% verkefnastjórn og 50% þjálfun.
Um er að ræða nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöðin er skipuð sex til átta starfsmönnum. Verkefnastjóri ber ábyrgð á almennu skipulagi deildar og stýrir daglegu starfi. Næsti yfirmaður er deildarstjóri stoðþjónustu í Hraunvallaskóla.
Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin mun vinna út frá styrkleikum barnanna og leggja áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi að hafa góða leiðtogahæfileika, þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla sýn á starfið í deildinni.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám, fyrri störf og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri. gudbjorgn@hraunvallaskoli.is og Anna Rut Pálmadóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, annar@hraunvallaskoli.is eða í síma 590-2800.
Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2025.
Öldutúnsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða frá 1. ágúst 2025
Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða til starfa. Um er að ræða 70 – 100% starf.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. – 10. bekk.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn hafðu endilega samband við okkur.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma 664-5894,margret@oldutunsskoli.is eða Áslaug Hreiðarsdóttir; aslaughr@oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 19. júní 2025.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH
Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir
Frístundaheimilið Álfakot í Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í tímabundið starf í sumarfrístund.
Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Starfið felur í sér stuðning við barn í sumar frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 8:00-16:00
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og hafi náð 20 ára aldri.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, margreth@engidalsskoli.is eða síma 5554433 og Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið arnheidurg@engidalsskoli.is eða í síma 555-4434.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum þroskaþjálfa til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir að ráða verkefnastjóra í nýtt og spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Skarðið.
Skarðið er félagsmiðstöð fyrir börn og unglinga í 5. – 10. bekk í Skarðshlíðarskóla og er staðsett í miðrými skólans. Skarðið leggur áherslu á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börnum og unglinga ásamt sértæku hópastarfi og tímabundnum verkefnum eftir að hefðbundnu skólastarfi lýkur. Skarðið kemur að mörgun viðburðum innan skólans og í samvinnu við aðrar félagsmiðstöðvar.
Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni. Verkefnastjóri í félagsmiðstöð ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni.
Um er að ræða 50-70% starf. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fjóla Sigrún Sigurðardóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar fjolasig@skardshlidarskoli.is eða í síma 527-7343
Tengiliður: Margrét Heiða Magnúsdóttir
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið. Ráðið er í stöðuna frá 25. ágúst 2025
Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025
Lækjarskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða í fullt starf. Við auglýsum eftir starfsfólki í bæði skólann og frístund.
Umsóknarfrestur til og með 17. júní 2025
Nánari upplýsingar veita Arna skólastjóri, arna@laekjarskoli.is
eða Bjarnveig deildarstjóri tómstundamiðstöðvarinnar, bjarnveig@laekjarskoli.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í einhverfudeild fyrir skólaárið 2025-2026.
Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2025.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2025.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.