Sérkennslustjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 20.08.2024

Umsóknarfrestur til: 10.09.2024

Tengiliður: Hildur Arnar Bjargardóttir

Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan sérkennslustjóra í 100% starf. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.

Heilsuleikskólinn Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að bera ábyrgð á og stjórna skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans
  • Að vera faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra
  • Að hafa umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu
  • Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni 
  • Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf. 
  • Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg
  • Þekking og reynsla af sérkennslu í leikskólum
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5832

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 10. september 2024.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.

 Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf