Skapandi sumarstörf

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 13.02.2023

Umsóknarfrestur til: 31.03.2023

Tengiliður: Margrét Gauja Magnúsdóttir

Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 1998-2005) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt hafnfirskt listafólk til að þróa sig áfram og þjálfa sig í að koma listsköpun sinni á framfæri.

Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá Margréti Gauju, verkefnastýru Hamarsins, alla virka daga frá 9-16. Netfangið hennar er mgm@hafnarfjordur.is og símanúmer 664-5551.

 Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna eftir eigin framkvæmdar- og verkáætlun
  • Að vera virkur á samfélagsmiðlum og kynna verkefnið
  • Að vera í samstarfi og samráði við aðra þátttakendur í Skapandi sumarstörfum
  • Að halda vinnudagbók og mæta á alla fundi sem verkefnastýra skipuleggur
  • Að koma fram á skipulögðum viðburðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar líkt og 17. júní o.fl.
  • Að taka virkan þátt í uppskerudögum Skapandi sumarstarfa haustið 2023.

Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:

  • Greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess og markmiðum
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun
  • Upplýsingar um alla aðstandendur verkefnisins og tilgreindur einn tengiliður verkefnisins

 

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2023

Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.

Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Forstöðumenn Vinnuskóla Hafnarfjarðar, deildarstjóri ungmennahúsa og verkefnastýra Skapandi sumarstarfa sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 14. apríl 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Gauja Magnúsdóttir deildarstjóri ungmennahúsa (mgm@hafnarfjordur.is) og í síma 664-5551.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf