Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 04.06.2025

Umsóknarfrestur til: 18.06.2025

Tengiliður: Margrét Halldórsdóttir

Frístundaheimilið Álfakot í Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í tímabundið starf í sumarfrístund.

Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning við barn í sumar frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 8:00-16:00

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfa með sumarfrístund
  • Er jákvæð fyrirmynd og hefur jákvæð áhrif á einstaklina um hin ýmsu málefni sem tengist þeirra daglega lífi
  • Tekur þátt í skipulagningu, undirbúning og framkvæmd á fjölbreyttu tómstundastarfi í samráði við deildarstjóra frístundastarfs.
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Veita börnum og unmennum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Stuðla að sjálfstæði einstaklinga, efla félagsfærni og vellíðan þeirra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og hafi náð 20 ára aldri.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, margreth@engidalsskoli.is eða síma 5554433 og Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið arnheidurg@engidalsskoli.is eða í síma 555-4434.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf