Skóla- og frístundaliði – Hraunvallaskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 08.06.2026
Umsóknarfrestur til: 22.06.2026
Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða skólaárið 2026-2027.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is
Starfshlutfall ráðningar er 50% -70% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli með því að vinna einnig í frístundaheimilinu Hraunsel/Drekasel eftir hádegi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
- Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
- Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
- Tekur á móti nemendum og aðstoðar
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
- Starfar með nemendum með sértækan vanda
- Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Almenn tölvukunnátta
- Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
- Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 22. juní 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika