Skóla- og frístundaliði í Hraunsel – Hraunvallaskóli

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 28.11.2024

Umsóknarfrestur til: 08.12.2024

Tengiliður: gudbjorgn@hraunvallaskoli.is

Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf fyrir skólaárið 2024-2025 í frístundaheimilið Hraunsel.

Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Hraunsel. Starfsemi Hraunsels er í skólanum. Hraunsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl. 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa. Möguleiki er á að auka starfshlutfall með því að sækja líka um starf skóla- og frístundaliða í Hraunvallaskóla.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
  • Starfar í frístundaheimili og á sumar- og leikjanámskeiðum
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar
  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum og snyrtingum snyrtilegum yfir daginn
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
  • Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Almenn tölvukunnátta
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, skólastjóri, gudbjorgn@hraunvallaskoli.is, Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri gudbjorgi@hraunvallaskoli.is og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is  eða í síma 590 2800.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 08. des. 2024.  

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika

Önnur störf