Skóla- og frístundaliði – Öldutúnsskóli
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 21.05.2026
Umsóknarfrestur til: 04.06.2026
Tengiliður: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliða fyrir skólaárið 2026-2027
Öldutúnsskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilið Selið.
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í 1. – 4. bekk í frístundaheimilinu Selinu eftir hádegi virka daga frá kl. 13:00 til kl. 17:00. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
Selið býður upp á fjölbreytt tómstundastarf þar sem lögð er áhersla á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Á skipulagsdögum skólans og virkum dögum í jóla- og páskafríi er frístundaheimilið opið frá kl. 8:00–16:30.
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi umhverfi þar sem allir leitast við að gera nám og starf áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytt viðfangsefni og öfluga teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Í Öldutúnsskóla eru um 580 nemendur í 1. – 10. bekk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoða við faglegt starf með nemendum.
- Starfa samkvæmt leiðsögn næsta yfirmanns.
- Stuðla að góðum aga og jákvæðum samskiptum.
- Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs.
- Stuðla að velferð barna í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Leitast við að virkja alla nemendur, óháð getu eða þroska, til þátttöku í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum.
- Sinna öðrum verkefnum samkvæmt starfslýsingu og fyrirmælum yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af og áhugi af starfi með börnum.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt skv. viðmiðum Evrópska tungumálarammans
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar veita Kristján Hans Óskarsson deildarstjóri tómstundamiðstöðvar eða í síma 664-5712, Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, eða Áslaug Hreiðarsdóttir eða í síma 555-1546
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við STH
Umsóknarfrestur er til 4. júní 2026
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.