Starfsmaður á athvarfið Læk – Lækur

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 18.09.2023

Umsóknarfrestur til: 01.10.2023

Tengiliður: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir

Leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstakling í afleysingar vegna fæðingarorlofs. Tímabil október 2023 til 1 september 2024. Um er að ræða 77% starf og er vinnutíminn frá kl. 10-16 alla virka daga.

Lækur er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
  • Leitast við að auka lífsgæði og stuðla að valdeflingu
  • Móttaka gesta Lækjar
  • Aðstoð í eldhúsi
  • Heilsuefling, útivist og sköpun
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á málaflokknum
  • Reynsla af störfum með geðfötluðu fólki er æskileg
  • Hugmyndarík/ur
  • Sýna frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
  • Geta til að vinna undir álagi og að bregðast við breyttum aðstæðum
  • Íslenskukunnátta

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).

Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2023.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf