Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 04.09.2024

Umsóknarfrestur til: 18.09.2024

Tengiliður: Hrund Brynjólfsdóttir

Starfsmaður óskast á Erluás, heimili fyrir fatlað fólk. 

Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til starfa á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á sjálfræði einstaklingsins.

Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið dag, kvöld, nætur og helgarvakir. Starfshlutfall 80-100%.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs

Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði

Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum

Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum

Almenn heimilisstörf

Samskipti við ýmsa þjónustuaðila

Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

Þjónustulund og jákvæðni í starfi

Hæfni í mannlegum samskiptum

Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku er nauðsynleg

Framtakssemi og samviskusemi

Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

Bílpróf

Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með hreint sakavottorð. 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi, í síma 585-5764, netfang: hrundb@hafnarfjordur.is 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2024

Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Önnur störf