Starfsmaður í sértæku frístundastarfi – Kletturinn
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 05.08.2026
Umsóknarfrestur til: 19.08.2026
Tengiliður: audurk@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum starfsmanni í Klettinn. Kletturinn er sértæk félagsmiðstöð fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10–20 ára. Um er að ræða hlutastarf í 30-50% starfshlutfalli.
Starfið hentar einstaklega vel þeim sem vilja starfa með börnum og ungmennum og taka þátt í skapandi og líflegu starfi samhliða námi. Markmiðið með starfinu er að fötluð börn og ungmenni fái tækifæri til að taka virkan þátt í fjölbreyttu frístundastarfi þar sem hver þátttakandi fær stuðning til að blómstra á sínum eigin forsendum.
Vinnutími er virka daga frá kl. 13:30-16:30 þar sem starfsmaður vinnur tvo-fimm daga í viku eftir starfshlutfalli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera jákvæð fyrirmynd og hafa uppbyggileg áhrif á börn og ungmenni í daglegu lífi
- Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs í samstarfi við starfsfólk og þátttakendur
- Skapa öruggt, virðingarfullt og jákvætt andrúmsloft, byggt á lýðræðislegum vinnubrögðum
- Veita þátttakendum stuðning við athafnir daglegs lífs, eftir þörfum hvers og eins
- Stuðla að sjálfstæði, félagsfærni og vellíðan einstaklinga í starfinu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu eða eftir beiðni yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Æskilegt er að hafa reynslu af starfi með fötluðum börnum eða ungmennum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og jákvætt viðmót
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Hreint sakavottorð er skilyrði.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Auður Björk Kvaran, audurk@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst 2026.
Umsókn skal fylgja ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsin