Stuðningsfulltrúi – Skarðshlíðarskóla

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 29.08.2024

Umsóknarfrestur til: 12.09.2024

Tengiliður: Ingibjörg Magnúsdóttir

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum stuðningsfulltrúa í 75 % starfshlutfall til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Þegar hverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfar með nemendum með sértækan vanda
  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara
  • Tekur á móti nemendum og aðstoðar
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Sinnir frímínútnagæslu, fylgd og gæslu í daglegu skólastarfi
  • Fylgist með og aðstoðar börnin í leik og starfi
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um sérstakt nám fyrir stuðningsfulltrúa, t.d. úr Borgarholtsskóla eða sambærilegt nám
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Mikill áhugi og metnaður til að starfa með börnum
  • Uppbyggjandi í samskiptum, sveigjanleiki og mikil samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Íslenskukunnátta skilyrði

 

Ef ekki fæst einstaklingur í starfið sem uppfyllir námskröfur fyrir stuðningsfulltrúa, kemur til greina að ráða inn einstakling í starfsheitið: Skóla og frístundaliði.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti ingibjorg@skardshlidarskoli.is 

Umsóknarfrestur er til og með 12. september 2024.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf