Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 07.03.2025

Umsóknarfrestur til: 21.03.2025

Tengiliður: Stefán Arnarson

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Blikaási í Hafnarfirði. 

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson forstöðumaður í síma 585-5762 eða á netfanginu stefana@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 21. mars 2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Önnur störf