Sumarstarf á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk – Drekavellir

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 01.07.2025

Umsóknarfrestur til: 10.07.2025

Tengiliður: Berglind Brynjarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt sumarstarf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Starfið er tímabundið sumarstarf til lok ágúst 2025. 

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, og helgarvaktir. Um er að ræða 80-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta skilyrði 
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Líkamleg geta til að sinna verkefnum á vinnustað  
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is eða Hrönn Hilmarsdóttir, netfang: hronnhilmars@hafnarfjordur.is 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf