Sumarstarf hjá vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 15.05.2026

Umsóknarfrestur til: 25.05.2026

Tengiliður: Gunnólfur@hafnarfjordur.is

Hafnarfjarðarbær leitar að sumarstarfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu Hafnarfjarðar í 100% starf í sumar.

Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Aðilinn ber ábyrgð á öllum áhöldum og búnaði sem unnið er með og að öll umgengni sé til fyrirmyndar. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði, sem er með aðsetur að Norðurhellu 2, þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

·         Viðhald og eftirlit með veitukerfum bæjarins í samstarfi við aðra starfsmenn vatns- og fráveitu

·         Þrif og viðhald á dælu- og lokahúsum

·         Málun brunahana og innan bygginga veitnanna

·         Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Reynsla af sambærilegu starfi kostur

·         Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund

·         Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni

·         Geta til að vinna undir álagi

·         Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

·         Líkamlega fær um að sinna þeim verkefnum sem starfið felur í sér

·         Ökuréttindi

  •    Íslenskukunnátta, A1 skv. samevrópskum tungumálaramma

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnólfur Lárusson yfirverkstjóri í síma 664-5641 eða í gegnum tölvupóst: gunnolfur@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 25. maí  2026.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Önnur störf