Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur

Sækja um starf

Umsóknarfrestur frá: 15.02.2023

Umsóknarfrestur til: 30.03.2023

Tengiliður: Stefán Arnarson

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhuga sama starfsmenn til sumarafleysinga á heimili fyrir fatlað fólk.

Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%-90% eða eftir samkomulagi og um er að ræða morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði fatlaðs fólks og stuðla að valdeflingu þeirra
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Almenn heimilisstörf
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Önnur verkefni sem samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Stefán Arnarson, forstöðuþroskaþjálfi, sími: 585-5765, netfang: stefana@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2023

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Önnur störf