Þroskaþjálfi í Fjölgreinadeild Hraunvallaskóla
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá: 08.06.2026
Umsóknarfrestur til: 22.06.2026
Tengiliður: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson
Hraunvallaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í Fjölgreinadeild skólans
Um er að ræða 80-100% starf skólaárið 2026-2027 og ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fjölbreytt nálgun í þroskaþjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við skólaþjónustu
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Taka þátt í stefnumótunarvinnu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheiti þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
- Jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Jákvæðni, sveigjanleika og góða samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga við ÞÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.